Fótbolti

Diljá gengin í raðir Norrköping

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Diljá Ýr Zomers er gengin í raðir Norrköping.
Diljá Ýr Zomers er gengin í raðir Norrköping. Norrköping

Nýliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, Diljá Ýr Zomers, er gengin til liðs við sænska liðið Norrköping frá Häcken.

Frá þessu er greint á heimasíðu Norrköping, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem Diljá mun leika með liðinu. Diljá var á láni hjá félaginu hálft síðasta tímabil.

Diljá lék ellefu leiki með Norrköping á seinasta tímabili og skoraði í þeim fjögur mörk. Norrköping lék í B-deild á seinasta tímabili, en vann sér sæti í efstu deildar í fyrsta skipti.

Diljá gerir þó ekki langan samning við Norrköping, en samningur hennar gildir aðeins út 10. júní næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×