Xavi tilbúinn að taka við Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2021 16:00 Xavi Hernandez í leik með Barcelona þar sem hann spilaði í sautján ár með meistaraflokksliðinu. EPA/MARCUS BRANDT Xavi Hernandez segist nú vera klár í það að taka við liði Barcelona og segir að það yrðu forréttindi fyrir hann að fá að þjálfa sinn gamla liðsfélaga Lionel Messi.
Xavi var enn á ný orðaður við þjálfarastarfið hjá Barcelona fyrr í sumar en forsetinn Joan Laporta ákvað að leyfa Ronald Koeman að halda áfram með Börsunga þrátt fyrir brösugt tímabil. Xavi hefur ekki verið í neinu sambandi við Joan Laporta síðan að Laporta settist aftur í forsetastólinn í mars. ESPN sagði frá því að Xavi væri nú klár í það að taka við Barcelona í framtíðinni. Xavi Hernández (Barça great): "I'm always in the market, I've been a coach for two years. I have a very good relationship with Laporta, but I have not been able to talk to him." [via as] pic.twitter.com/4Cl5zMIqQQ— barcacentre (@barcacentre) June 10, 2021 „Ég er alltaf á markaðnum. Félagið ákvað að halda áfram með Koeman og ég óska honum alls hins besta. Ég hef ekki heyrt i Laporta eða öðrum stjórnarmönnum undanfarna fjóra mánuði,“ sagði Xavi þegar hann hitti blaðamenn í tengslum við sumarbúðir sínar í Katalóníu. „Ég veit ekki hvenær tækifærið kemur en það yrði draumur fyrir mig að snúa aftur til Barcelona einn daginn. Ég er samt ekkert að flýta mér ef ég segi alveg eins og er en ég vona að þetta gerist einhvern tímann,“ sagði Xavi. Xavi on why he did not return to Barcelona! #Xavi #FCBarcelona #Barca pic.twitter.com/pdG7Prsfpd— Sportskeeda Football (@skworldfootball) June 6, 2021 Xavi Hernandez lék með Barcelona í 24 ár eða frá því að hann kom inn í akademíu félagsins árið 1991. Hann vann Meistaradeildina fjórum sinnum með Barcelona og spænsku deildina átta sinnum. Xavi lék alls 767 leiki fyrir Barcelona frá 1998til 2015 þar af 505 þeirra í spænsku deildinni. Honum hefur tvisvar verið boðið þjálfarastarfið hjá Barcelona en neitað í bæði skiptin.
Spænski boltinn Mest lesið Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Fótbolti Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Enski boltinn Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Handbolti UEFA setur pressu á City Football Group Fótbolti Neitaði að svara spurningum um skilnaðinn Sport Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Fótbolti Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti Fleiri fréttir Í beinni: Stjarnan - KR | Bikarslagur Bestu deildar liða Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Sjá meira