Öllum stafar ógn af ríkjum í afneitun og feluleik Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. mars 2021 14:28 Sérfræðingur segir faraldurinn hafa leitt í ljós hversu mikilvæg öflug forysta er. epa Þrjú ríki virðast í afneitun eða feluleik þegar kemur að Covid-19 og hafa ekki deilt upplýsingum um stöðu mála. Umrædd ríki eru Tansanía, Túrkmenistan og Norður-Kórea en sérfræðingar segja áhyggjuefni að SARS-CoV-2 fái mögulega að grassera óáreitt á ákveðnum stöðum.
Fyrir utan þá þjáningu og dauðsföll sem óheftur faraldur hefur í för með sér, eru mögulegar afleiðingar meðal annars að smit berist til annarra ríkja og fleiri alvarlegar stökkbreytingar veirunnar. CNN greinir frá því að engar nýjar tölur hafi borist um stöðu faraldursins í Tansaníu frá því í maí á síðasta ári, þegar 509 voru sagðir hafa greinst með Covid-19 og 21 látist. Þá hafa stjórnvöld í Túrkmenistan ekki tilkynnt nein tilvik til Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Norður-Kórea hefur heldur ekki tilkynnt um nein tilfelli, sem þykir grunsamlegt, ekki síst í ljósi þess að íbúar landsins telja 26 milljónir og landamæri þess liggja að Kína, þar sem faraldurinn braust út. Hins vegar er mögulegt að stjórnvöldum þar hafi tekist að halda veirunni í skefjum með auknum einangrunaraðgerðum. Hættulegt þegar leiðtogar neita að horfast í augu við vandann Að sögn Dorit Nitzan, svæðisstjóra hjá WHO, hafa fjórtán ríki ekki tilkynnt tilfelli Covid-19 en mörg þeirra eru tiltölulega einangraðar smáþjóðir á borð við Kiribati og Tuvalu. Í Tansaníu hefur forsetinn John Magugfuli ítrekað gert lítið úr faraldrinum og hvatt íbúa til að „biðja veirunna í burtu“, auk þess að grípa til hefðbundinna úrræða á borð við að anda að sér gufu. Forsetinn hefur einnig neitað að falast eftir bóluefnum og sagt þau hættuleg þjóðinni. Samkvæmt bandaríska sendiráðinu í borginni Dar es Salaam hefur tilvikum kórónuveirunnar farið fjölgandi frá því í janúar. Peter Drobac, sérfræðingur í alþjóðaheilbrigðismálum, segir faraldurinn hafa leitt í ljós hversu mikilvæg öflug forysta sé og hversu hættulegt það er þegar leiðtogar neita að horfast í augu við vandann. Misvísandi skilaboð og afneitun gagnvart gagnsemi sóttvarna á borð við grímunotkun hefði meðal annars hraðað dreifingu veirunnar í Bandaríkjunum og Brasilíu og leitt til dauðsfalla sem hefði mátt koma í veg fyrir. Hvetja til grímunotkunar vegna „rykagna“ í andrúmsloftinu „Ekkert okkar er öruggt neins staðar fyrr en við erum öll örugg alls staðar,“ segir Drobac. Í Túrkmenistan hafa stjórnvöld takmarkað ferðalög og hvatt fólk til að halda fjarlægð og vera með grímur en ekki vegna Covid-19, heldur vegna „rykagna“ í andrúmsloftinu. Samkvæmt Human Rights Watch hafa þarlend stjórnvöld meðal annars aukið á neyð þjóðarinnar með afneitun sinni og jafnvel þvingað heilbrigðisstarfsfólk til að ræða ekki um útbreiðslu veirunnar. Enginn sjálfstæður fjölmiðill er í landinu. Diana Serebryannik, framkvæmdastjóri Rights and Freedoms of Turkmenistan Citizens, segir ástandið í landinu grafalvarlegt. Veikir hafi ekki aðgang að viðeigandi úrræðum og læknar viti ekki hvernig þeir eigi að meðhöndla þá. Samtökin hafa opnað netþjónustu fyrir þá sem gruna að þeir hafi smitast af Covid-19 og þegar hafa 3.500 manns haft samband. „Það er engin viðurkenning á því að vírusinn sé í landinu,“ segir Serebryannik. Ítarlega frétt um málið má finna hjá CNN.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Heilbrigðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Rússar og Bandaríkjamenn í návígi á herstöð í Níger Fréttir Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Erlent Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael Erlent Fleiri fréttir Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Sjá meira