Messi sá fyrsti í áttatíu mörkin en ætlaði örugglega ekki að skora þarna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2021 11:00 Lionel Messi fagnar markinu með liðsfélögum sínum. Markið braut ísinn og gerði argentínska liðinu allt auðveldara fyrir. AP/Natacha Pisarenko Lionel Messi hélt áfram að skrifa söguna í nótt þegar hann kom argentínska landsliðinu á bragðið í 3-0 sigri á Úrúgvæ í undankeppni HM.
Messi varð þar með fyrsti Suður-Ameríkumaðurinn sem nær að skora áttatíu landsliðsmörk. Messi hefur skorað mörkin sín 80 í 155 landsleikjum. Brasilíumaðurinn Pelé var mjög lengi sá markahæsti í Suður-Ameríku með 77 mörk í 92 leikjum en Neymar er nú kominn með 69 mörk í 114 leikjum. Messi hefur jafnframt skorað 26 mörkum fleira en næstmarkahæsti argentínski landsliðsmaðurinn sem er Gabriel Batistuta með 54 mörk. Leo Messi was honored after the match by the Argentine Federation for becoming the top goalscorer in CONMEBOL history pic.twitter.com/jyT7BCqBFu— B/R Football (@brfootball) October 11, 2021 Markið hans var samt frekar sérstakt en þá skoppaði fyrirgjöf hans fram hjá markverðinum og í markið. Afar slysalegt mark fyrir markvörð Úrúgvæja og um leið sögulegt mark fyrir Messi. Nicolas Gonzalez gerði sig líklegan til að sparka tánni í boltann en missti af honum og það gerði Fernando Muslera líka í marki Úrúgvæ. Messi ætlaði örugglega ekki að skora þarna sjálfur enda að gefa boltann fyrir en hann fagnaði markinu vel enda það mjög mikilvægt í baráttunni um sæti á HM í Katar 2022. Messi hefur skorað mörg snilldarmörk á sínum ferli en þetta sögulega mark mun þó alltaf hafa á sér heppnisstimpil. Rodrigo de Paul og Lautaro Martinez innsigluðu síðan sigur Argentínu og Messi var kátur í leikslok. Did he mean to do this? Who knows when it comes to Lionel Messi... https://t.co/GGf8xzNtxO— SPORTbible (@sportbible) October 11, 2021 „Við spiluðu frábæran leik og allt gekk fullkomlega upp hjá okkur,“ sagði Lionel Messi eftir leikinn. „Úrúgvæ situr aftarlega og bíður eftir þér og þeir eru alltaf hættulegir í skyndisóknunum. Um leið og við náðum inn fyrsta markinu þá fórum við að finna pláss og hin mörkin fylgdu í kjölfarið,“ sagði Messi. Argentínska liðið hefur nú spilað 24 leiki í röð án þess að tapa og minnkuðu líka forskot Brasilíumanna í riðlinum þar sem að brasilíska liðið gerði á sama tíma markalaust jafntefli við Kólumbíu. Top Scorers in South America:8 0 Messi7 7 Pele6 9 Neymar6 4 Suarez6 2 Ronaldo5 5 Romario5 4 Batistuta5 3 Cavani4 8 Zico4 6 Sanchez4 2 Aguero pic.twitter.com/BBXqSL3Wj0— Barca Galaxy (@barcagalaxy) October 11, 2021
HM 2022 í Katar Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Fleiri fréttir Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Sjá meira