UN Women fjarlægir allt markaðsefni með Auði Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 7. júní 2021 16:34 Allt markaðsefni UN Women með tónlistarmanninum Auði hefur verið fjarlægt vegna ásakana á hendur honum um kynferðisofbeldi. Vísir/Daniel Thor UN Women á Íslandi hafa tekið út allt markaðsefni sem tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, betur þekktur sem Auður, kemur fram í. Það er gert vegna ásakana um kynferðisofbeldi á hendur Auði. Þetta staðfestir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, í samtali við fréttastofu.
Auður kom meðal annars fram í auglýsingaefni fyrir herferðina Fokk ofbeldi auk þess sem hann hélt styrktartónleika fyrir samtökin í tilefni af árlegri Ljósagöngu UN Women árið 2019. Það hefur nú allt verið fjarlægt af samfélagsmiðlum á vegum samtakanna. „Jú, það er rétt. UN Women á Íslandi hefur fjarlægt allt markaðsefni með tónlistamanninum Auði. Það er vegna frétta í fjölmiðlum um ásakanir á hendur Auði sem hafa gengið á samfélagsmiðlum undanfarna daga, auk frétta um að Þjóðleikhúsið hafi til skoðunar þessar ásakanir,“ segir Stella í samtali við fréttastofu. „UN Women trúir og styður við þolendur og fyrir vikið var tekin ákvörðun á vegum samtakanna um að taka út efni sem mögulega gæti triggerað þolendur,“ segir Stella. Þjóðleikhúsið hefur ásakanir um kynferðisofbeldi til skoðunar DV greindi frá því fyrr í dag að Þjóðleikhúsið hafi til skoðunar ásakanir um kynferðisofbeldi á hendur Auði. Auður sér um tónlistina fyrir leiksýninguna Rómeó og Júlíu sem er á dagskrá Þjóðleikhússins fyrir næsta leikár. Þá greindi Fréttablaðið frá því fyrr í dag að Auður hafi misst meira en þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlinum Instagram á síðustu vikum. Þann 4. maí hafi hann verið með 12.800 fylgjendur á miðlinum en sé nú með 11.800 fylgjendur. Háværar sögusagnir hafa gengið um samfélagsmiðla, og þá sérstaklega Twitter, síðustu daga þar sem Auður hefur verið ásakaður um að hafa sofið hjá stelpum undir lögaldri og að hafa beitt stúlkur frelsissviptingu. Auður er sjálfur 28 ára gamall. Fjöldi fólks hefur á samfélagsmiðlum sakað Auði um ýmislegt misjafnt en hann sjaldan verið nafngreindur. Ýmist hefur verið vísað til landsþekkts tónlistarmanns eða í lagatexta hans. Meðal annars hefur verið vísað í lagið Siðblindur, sem Auður gaf út árið 2018. Auður tísti í byrjun maí hve átakanlegt það sé að sjá svart á hvítu hversu algengt kynferðisofbeldi sé. Tístið fékk misjöfn viðbrögð. Átakanlegt að sjá svart á hvítu hversu algengt kynferðisofbeldi er í kringum mann. Sendi styrk og ást til þolenda. — AUÐUR (@auduraudur) May 7, 2021 Hvorki hefur náðst í Auðunn, Steinunni Camillu, umboðsmann hans, né hefur fyrirspurn fréttastofu vegna málsins verið svarað af Þjóðleikhúsinu.
Kynferðisofbeldi Auglýsinga- og markaðsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Erlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Innlent Fleiri fréttir Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Sjá meira