Tók saman lista yfir fjölmennustu íslensku Facebook-hópana Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 29. nóvember 2020 15:03 Daníel Brandur Sigurgeirsson tók á dögunum saman lista yfir fjölmennustu Facebook-hópana á Íslandi „Ég veit náttúrlega að þetta er ekki endilega tæmandi listi en ég er orðinn nokkuð vongóður um að maður sé búinn að taka saman megnið af fjölmennustu íslenskum hópum með þessu,“ segir tölvunarfræðingurinn Daníel Brandur Sigurgeirsson í samtali við Vísi. Daníel tók á dögunum saman lista yfir fjölmennustu Facebook-hópana á Íslandi og birti í færslu á sinni Facebook-síðu. Yfir hundrað hópar eru á listanum sem enn fer vaxandi.
Fjölmennasti hópurinn á listanum er „Brask og brall,“ en hátt í 160 þúsund manns eru í hópnum. Þá næst kemur hópurinn „Gefins, allt gefins!“ þar sem meðlimir eru um 114 þúsund talsins og sá þriðji fjölmennasti er hópurinn „Keypt í Costco Ísl. – Myndir og verð“ með hátt í 93 þúsund meðlimi samkvæmt samantektinni. Listann í heild sinni, sem Daníel birti fyrst fyrir viku síðan, má sjá í færslu hans hér neðar í fréttinni. Sjálfur er Daníel stofnandi Facebook-hópsins „Hver hendir svona,“ sem hann stofnaði fyrir vinkonu sína en í hópnum deilir fólk myndum af ótrúlegustu hlutum sem það finnur á nytjamörkuðum. „Þegar að sá hópur skreið yfir tíu þúsund þá fór ég að spá í því hvað ætli það séu í raun og veru margir hópar sem eru með yfir tíu þúsund meðlimum og fór að taka þetta saman,“ útskýrir Daníel. Þetta er þó ekki eini hópurinn sem Daníel stýrir sem kemst á listann en hann er jafnframt stjórnandi „Áhugahóps um endurvinnslu og endurnýtingu“ þar sem meðlimir eru vel yfir fimmtán þúsund. „Ég held ég geti sagt núna með nokkurri vissu að ég sé admin í sirka 2% af fjölmennustu íslensku hópunum, en ekki að það skipti neinu máli,“ segir Daníel léttur í bragði. Síðan hann birti listann hefur hann fengið fjölda ábendinga um fleiri fjölmenna hópa. „Ég man ekki hvort þetta voru rétt innan við fimmtíu en núna er þetta komið yfir 100 eða nær 110 hópar sem eru með tíu þúsund manns eða fleiri,“ segir Daníel. Hann segir ýmislegt forvitnilegt koma í ljós þegar listinn er skoðaður. „Það eru svo margir söluhópar sem eru að selja sömu hlutina, það eru nokkrir hópar þarna sem eru að selja bíla,“ segir Daníel sem telur að minnsta kosti átta hópa á listanum þar sem aðeins eru seldir bílar. „Svo er það náttúrlega nafnagiftir á hópum, það er mjög sérstakt oft,“ bætir hann við. „Það er áhugavert hvað það er sem að skiptir fólk máli, það eru augljóslega mjög margir hópar sem snúast um það að skiptast á hlutum. Hvort sem það er að selja eða gefa eða annað. Svo eru það áhugamannahóparnir, það eru hundahóparnir og kattahóparnir og gönguhópar og allt þetta. Þetta eru svona hópar sem eru að taka einhverja sérstaka hluti fyrir,“ segir Daníel sem síðast í morgun bætti við nýjum hópi á listann.
Samfélagsmiðlar Facebook Mest lesið Keppendur í Ungfrú Ísland 2024 Lífið Egill mætti með barnabörnin á forsýningu Snertingar Bíó og sjónvarp Glæsihús Gerðar í Blush aftur á sölu Lífið Clooney mælti með handtöku Netanyahu Lífið Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Lífið Með átján husky hunda á heimilinu og mæla með Lífið Stjörnulífið: Löng helgi, hátíðarsýning og tónleikar Lífið Forðast drama eins og heitan eldinn Lífið Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar Lífið Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós Lífið samstarf Fleiri fréttir Mætti í sjónvarpið eftir nokkurra ára hlé og segist hafa lært sína lexíu Er hægt að „lækna“ lélegt kynlíf? Forsetaáskorunin: Hljóp í skarðið á Stuðmannaballi en í basli með textann Prinsinn hélt blautt garðpartý Keppendur í Ungfrú Ísland 2024 Glæsihús Gerðar í Blush aftur á sölu Clooney mælti með handtöku Netanyahu Stjörnulífið: Löng helgi, hátíðarsýning og tónleikar Með átján husky hunda á heimilinu og mæla með Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Sungið og sungið á Sauðárkróki Elín Metta og Sigurður eiga von á barni Forðast drama eins og heitan eldinn Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar „Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Sjá meira