Refir falli undir skilgreiningu um gæludýr Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 24. október 2021 12:00 Refurinn Gústi Jr. hefur valdið miklum usla hjá Matvælastofnun. aðsend Lögmaður ungs manns sem á ref telur afar skrýtið hvernig Matvælastofnun hefur beitt sér í því að ná refnum af honum. Hann segir að ekki sé hægt að útiloka að refir geti skilgreinst sem gæludýr ef þeir alast upp á heimili manna.
Eins og fréttastofa greindi frá í vikunni ruddist lögregla inn á heimili mannsins ásamt fulltrúa Matvælastofnunar með húsleitarheimild til að taka refinn af honum. Hann fannst þó ekki á heimilinu. Fyrrverandi aðstoðarvarðstjóri lögreglunnar á Selfossi, sem átti sjálfur ref fyrir aldamót, gagnrýndi þessi vinnubrögð í gær. Matvælastofnun hefur nú beint málinu til lögreglu og eigandi refsins er kominn með lögfræðing. Og hann telur afar sérstakt hvernig Matvælastofnun hefur keyrt málið áfram. Refur er hryggdýr en ekki búdýr Samkvæmt íslenskum lögum er bannað að halda villt dýr. Að hans sögn er þó óljóst hvaða dýr eru villt í augum laganna. „Það er allavega ljóst í lögum að undanþegin frá skilgreiningunni um villt dýr eru gæludýr," segir Helgi Þorsteinsson lögmaður mannsins. „Í reglugerð eru gæludýr talin sem hundar, kettir og önnur hryggdýr. Og refur er augljóslega hryggdýr." Í reglugerðinni sé þó talað um að búdýr geti ekki talist gæludýr og þau talin upp: „Það eru meðal annars svín, alifuglar, minnkar, sauðfé, geitfé, nautgrip og hross. Þannig við erum komin í nokkrar undantekningar og undantekningar á undantekningum og samt er ekkert að finna um refi," segir Helgi. „Nú ef að það er ekkert að finna um þá, þá getur maður alveg ímyndað sér að þeir hljóti bara að vera hryggdýr og ef þeir eru hryggdýr þá er ekkert sem kemur í veg fyrir að þeir geti verið gæludýr." Gústi ekki óargadýr í búri Hann telur ekki útilokað að málið fari fyrir dómstóla ef lögregla kýs að halda áfram með það. Og loks telur hann að Matvælastofnun sé að oftúlka lagaákvæði um að bannað sé að halda villt dýr: „Þau eru væntanlega sett til að koma í veg fyrir það sem er stundum kallað kjarnatilvik; Ímyndað tilvik sem er akkúrat það sem lögunum er ætlað að stöðva. Og þá getur maður séð fyrir sér að vera hreinlega með óargadýr í búri og eitthvað slíkt og það er það sem ákvæðinu er ætlað að stöðva. Það er bara ekkert upp á teningnum hér," segir Helgi. „Þess vegna er svo skrýtið að málsmeðferðin sé þannig að um sé að ræða algjört kjarnatilvik sem þurfi að stöðva bara einn tveir og þrír."
Dýr Dýraheilbrigði Gæludýr Lögreglumál Refurinn Gústi jr. Tengdar fréttir Of seint fyrir Gústa að aðlagast náttúrunni og sambúðin versni þegar hann þroskast „Gústi refur hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu og þá sérstaklega „eigandi“ hans Tiktok stjarnan Ágúst Beinteinn Árnason. Refur þessi er haldinn að því er virðist í miðborg Reykjavíkur þar sem hann er í tjóðri eiganda síns honum til skemmtunar. Það þarf að sjálfsögðu ekki að fjölyrða um að hér er um lögbrot að ræða, enda refir villt dýr sem ekki má halda án sérstaks leyfis.“ 30. september 2021 16:05 Magnús Norðdahl hættur að hugsa um kosningarnar og farinn að verja refi Magnús Davíð Norðdahl, lögfræðingur og oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi í síðustu alþingiskosningum, er hættur að hugsa um kosningamálið í bili og farinn að snúa sér aftur að lögfræðistörfum. Þar á meðal máli sem kom nýlega inn á borð lögfræðistofu hans, um refinn Gústa Jr. sem Vísir hefur fjallað um. 17. október 2021 20:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira
Of seint fyrir Gústa að aðlagast náttúrunni og sambúðin versni þegar hann þroskast „Gústi refur hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu og þá sérstaklega „eigandi“ hans Tiktok stjarnan Ágúst Beinteinn Árnason. Refur þessi er haldinn að því er virðist í miðborg Reykjavíkur þar sem hann er í tjóðri eiganda síns honum til skemmtunar. Það þarf að sjálfsögðu ekki að fjölyrða um að hér er um lögbrot að ræða, enda refir villt dýr sem ekki má halda án sérstaks leyfis.“ 30. september 2021 16:05
Magnús Norðdahl hættur að hugsa um kosningarnar og farinn að verja refi Magnús Davíð Norðdahl, lögfræðingur og oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi í síðustu alþingiskosningum, er hættur að hugsa um kosningamálið í bili og farinn að snúa sér aftur að lögfræðistörfum. Þar á meðal máli sem kom nýlega inn á borð lögfræðistofu hans, um refinn Gústa Jr. sem Vísir hefur fjallað um. 17. október 2021 20:30