„Já, fínt“ Jakob Bjarnar skrifar 26. september 2021 09:40 Brynjar er dottinn út af þingi. Hann segir að rétttrúnaðurinn hafi fengið á lúðurinn og stóri tapari kosninganna séu kompaníin sem sjá um skoðanakannanir. Sjálfstæðisflokkurinn. Brynjar Níelsson lögmaður og fyrrverandi Alþingismaður er dottinn út af þingi þrátt fyrir að hans lið, Sjálfstæðisflokkurinn, teljist meðal óvíræðra sigurvegara kosninganna.
Vísir vakti Brynjar nú í morgunsárið með þessum ótíðindum. Óhætt er að segja að staðið hafi tæpt hvort Brynjar næði kjöri enda var hann inn og út af þingi í alla nótt. Sjálfstæðisflokkurinn fékk sextán þingmenn kjörna en sautjánda þingmann vantaði átta atkvæði til að fella sjötta þingmann Pírata, hina ungu Lenyu Rún Taha Karim. Hefði flokkurinn því fengið 136 atkvæði í viðbót á landsvísu þá hefði jöfnunarþingmaðurinn fallið þeirra megin en ekki Pírata. „Er Birgir [Ármannsson] inni?“ spurði Brynjar í svefnrofunum. Og þegar honum var sagt að svo væri sagði hann, já fínt. Það er regla fyrir því. Birgir er alltaf inni.“ Stjórnarandstaðan máttlaus og léleg Brynjar segist ekki vita hvað taki við. Segir að það verði farið yfir það allt í rólegheitunum. Við spurningunni hvort það sé ekki sérkennilegt að vera í sigurliðinu en sitja sjálfur eftir með sárt ennið gefur Brynjar ekkert út á það. „Æji, ég veit það ekki. Er ekki allt í lagi að fara að gera eitthvað annað? Ég held að það sé ágætt að fara að breyta um kúrs. Framtíð þjóðarinnar stendur ekki og fellur með mér.“ Brynjar og Diljá voru í banastuði á kosningavöku Sjálfstæðisflokksins í gær. Þá var Brynjar inni og vildi meira. Brynjar segist pollrólegur og nú komi nýir tímar. Hann hafi fallið út vegna þess að Ásmundur Einar Daðason hafi reynst svo sterkur í kosningunum en Framsóknarflokkurinn, sem hafði engan mann í Reykjavík norður, fær tvo þingmenn kjörna nú. Almennt um niðurstöðuna segist Brynjar alltaf hafa haft þetta á tilfinningunni að niðurstaðan gæti orðið á þessa leið. „Að menn væru ekki að fara að flykkja sér um þessa stjórnarandstöðu. Hún var svo máttlaus og léleg. En auðvitað, kom mér á óvart þetta með Flokk fólksins en ekki þetta með Sósíalistana. Ég hafði alltaf tilfinningu fyrir því að Sósíalistarnir næðu ekki fimm prósentum.“ Þeir voru líka buffaðir rækilega á lokasprettinum, meðal annars af þér? „Þeir fóru bara langt fram úr sér, sárlasið fólk sem hefur verið í dái í fimmtíu ár,“ segir Brynjar og vísar til sósíalismans sem kenningar. „Nei, það kom mér ekki á óvart en ég hafði ekki tilfinningu fyrir því að Flokkur fólksins fengi svona mikið.“ Rétthugsunarfólkið fékk á lúðurinn Niðurstöður kosninganna voru ekki í neinu samræmi við það sem áður hafði verið spáð? „Taparar kvöldsins eru kompaníin sem gera skoðanakannanir,“ segir Brynjar. Og nefnir að þau hjá Samfylkingunni hljóti að vera í sjokki. „Þau héldu að þau væru á svakalegri uppleið.“ Liggur ekki fyrir að kjósendur almennt eru að hafna þessu því sem kallað hefur verið rétttrúnaður? „Þeir eru alla vega að hafna vinstri stjórn. Það er hluti að þessu líka. Ég vonast til þess að það sé aðeins verið að gefa þessu rétthugsunarfólki svolítið á lúðurinn.“ Brynjar segir að þeir flokkar sem nú fara flatt hafi einmitt tekið að sér að hýsa það fyrirbæri. „Heldur betur. Og þetta er heldur ekki trúverðugt fólk, finnst mér. Ég óttaðist að unga fólkið væri að henda sér á þetta en það hefur ekki gert það.“ Fréttin hefur verið uppfærð þar sem ónákvæmni gætti í lestri blaðamanns á reiknilíkani fréttastofu. Áður stóð að Sjálfstæðisflokkuurinn hefði aðeins þurft átta atkvæði á landsvísu til að Brynjar kæmist á þing. Beðist er velvirðingar á þessari ónákvæmni.
Alþingiskosningar 2021 Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavíkurkjördæmi norður Tengdar fréttir Lokatölur úr Reykjavík norður: Ásmundur Einar þingmaður í Reykjavík Ásmundur Einar Daðason er nýr þingmaður Reykvíkinga eftir eftir stórbætingu flokksins frá því í kosningunum fyrir fjórum árum. Framsókn fékk 5,3 prósenta fylgi í kjördæminu fyrir fjórum árum en 12,3 prósent í ár. Um er að ræða langþráðan þingmann flokksins í kjördæminu. Píratar náðu tveimur mönnum inn á þing í kjördæminu. 26. september 2021 04:55 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Erlent Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Erlent Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Innlent Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Erlent Fleiri fréttir Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Var beðinn um upplýsingar um unga leikmenn vegna veðmáls Um fimm prósent fjölskyldusameininga vegna flóttamanna og hælisleitenda Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári tekur ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Sjá meira
Lokatölur úr Reykjavík norður: Ásmundur Einar þingmaður í Reykjavík Ásmundur Einar Daðason er nýr þingmaður Reykvíkinga eftir eftir stórbætingu flokksins frá því í kosningunum fyrir fjórum árum. Framsókn fékk 5,3 prósenta fylgi í kjördæminu fyrir fjórum árum en 12,3 prósent í ár. Um er að ræða langþráðan þingmann flokksins í kjördæminu. Píratar náðu tveimur mönnum inn á þing í kjördæminu. 26. september 2021 04:55