Erdogan breytir Ægisif í mosku Andri Eysteinsson skrifar 10. júlí 2020 15:04 Frá Ægisif í Istanbul sem nú verður að mosku að nýju. Getty/Yasin Akgul
Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan hefur nú skrifað undir opinbera tilskipun sem kveður á um að Ægisif verði héðan í frá að mosku að nýju. Fyrr í dag ákvarðaði æðsti stjórnlagadómstóll Tyrklands að ekki skyldi skilgreina byggingu sem safn en það hefur verið gert frá því að Mustafa Kemal Ataturk ákvarðaði það árið 1934. Ægisif, eða Sofíukirkjan, var byggð í tíð Austrómverska keisaradæmisins á 6. öld. Hún var helsta dómkirkja rétttrúnaðarkirkjunnar í fleiri aldir. Þegar Mikligarður, eins og norrænir menn kölluð borgina, féll í hendur Tyrkjaveldis árið 1453 voru fjórir bænaturnar reistir við kirkjuna og henni breytt í mosku. Mustafa Kemal Ataturk, stofnandi tyrkneska lýðveldisins, lét breyta Ægisif í safn árið 1934 sem laðar að sér milljónir ferðamanna árlega. Í niðurstöðu stjórnlagadómstólsins kom fram að ákvörðun ríkisstjórnarinnar árið 1934 hafi ekki staðist lög. Tyrkneskir þjóðernissinnar og trúarhópar óskuðu eftir því að byggingunni yrði breytt í mosku á nýjan leik og studdi Erdogan tillöguna. Tillagan var gagnrýnd víða, bæði af erlendum embættismönnum og af trúarleiðtogum. Með tilskipun Erdogan verður stjórn Ayasofya-moskunni eins og hún er kölluð færð til tyrkneskra trúaryfirvalda og mun hún bráðlega vera opnuð að nýju sem moska.
Tyrkland Tengdar fréttir Rétttrúnaðarkirkjan mótmælir kröfu um að Ægisif verði moska Rússneska rétttrúnaðarkirkjan telur óásættanlegt ef Ægisif í Istanbúl verður breytt úr safni í mosku eins og hópur tyrkneskra þjóðernissinna og múslima gerir kröfu um. Fleiri trúar- og stjórnmálaleiðtogar hafa gagnrýnt mögulega breytinguna. 4. júlí 2020 21:28 Niðurstöðu beðið um hvort Ægisif verður breytt aftur í mosku Æðsti stjórnsýsludómstóll Tyrklands íhugar nú kröfu þjóðernissinna og trúarhópa um að Ægisif, helsta kennileiti Istanbúl, verði breytt aftur í mosku. Lögmaður tyrkneska ríkisins leggst gegn kröfunni en niðurstöðu er að vænta innan tveggja vikna. 2. júlí 2020 10:22 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent Fannst hennar tími vera kominn Innlent Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Innlent Ofbeldisbrotum fjölgar á sama tíma og lögreglumönnum fækkar Innlent Landeigendur höfða mál gegn ríkinu vegna Hvammsvirkjunar Innlent Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Erlent Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Innlent Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Innlent Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Innlent Fleiri fréttir Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Kynferðisafbrotamanni bannað að nota gervigreind Varnarmál efst á baugi nýs formanns Ætla að endurreisa Børsen „sama hvað“ Frumvarp um bann við TikTok samþykkt Heita Úkraínu 61 milljarði dala í stuðning Tugir þúsunda mótmæltu fjölda ferðamanna á Kanaríeyjum Sprengjuhótun í Billund Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Sjá meira
Rétttrúnaðarkirkjan mótmælir kröfu um að Ægisif verði moska Rússneska rétttrúnaðarkirkjan telur óásættanlegt ef Ægisif í Istanbúl verður breytt úr safni í mosku eins og hópur tyrkneskra þjóðernissinna og múslima gerir kröfu um. Fleiri trúar- og stjórnmálaleiðtogar hafa gagnrýnt mögulega breytinguna. 4. júlí 2020 21:28
Niðurstöðu beðið um hvort Ægisif verður breytt aftur í mosku Æðsti stjórnsýsludómstóll Tyrklands íhugar nú kröfu þjóðernissinna og trúarhópa um að Ægisif, helsta kennileiti Istanbúl, verði breytt aftur í mosku. Lögmaður tyrkneska ríkisins leggst gegn kröfunni en niðurstöðu er að vænta innan tveggja vikna. 2. júlí 2020 10:22