„Enginn tími til að renna á rassinn núna” Árni Gísli Magnússon skrifar 26. september 2022 20:30 Kristján Guðmundsson að athuga hvort einhver af hans leikmönnum sé að renna á rassinn. Vísir/Hulda Margrét Stjarnan sigraði Þór/KA örugglega, 0-4, í Boganum á Akureyri í lokaleik 17. umferðar Bestu deildar kvenna. Með sigrinum fór Stjarnan upp í 2. sæti og er því með pálmann í höndunum fyrir lokaumferðina hvað varðar Evrópusæti.
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var sáttur í leikslok en sagði þó að Evrópusætið væri langt frá því að vera tryggt. „Þór/KA á fyrsta skotið að marki í leiknum og ég er yfirleitt ekki sáttur með það þegar andstæðingurinn á fyrsta skot að marki en svo fannst mér bara leikmennirnir okkar vera alveg frábærar og skora úr fyrstu hornspyrnunni og einhvernveginn líta aldrei til baka og mér fannst þær spila gríðarlega vel, sérstaklega náttúrulega fyrri hálfleikinn.” Leikurinn fór fram í Boganum sökum óveðursins í gær en Þórsvöllur var illa á sig kominn eftir það. Stjörnunni virtist líða miklu betur en heimakonum á gervigrasinu strax frá byrjun. „Ég held að það hafi verið fyrst og fremst hvernig við spiluðum með boltann, þ.e.a.s. sóknarleikurinn okkar, hann var hraður og fínn og ég held að það hafi verið lykilinn að þessu að þegar við unnum boltann og vorum með hann þá var mikil hreyfing á liðinu og auðvelt að finna leikmenn til að senda á og sóknirnar okkar góðar. Ég held að það hafi verið svona lykillinn að þessu og þegar lið eru svona sterk með boltann þá fylgir varnarleikurinn eftir.” Stjarnan er í Evrópusæti sem stendur en lokaumferðin er eftir þar sem allt getur gerst. „Það er enginn tími til að renna á rassinn núna, það er alveg á hreinu, og miðað við hvernig leikmenn komu að þessum leik í dag þá hef ég fulla trú á því að þær komi inn í leikinn á laugardaginn með sama hugarfar og spili góðan leik svipað og í dag. En það er nýr mótherji sem er alveg jafn sterkur og Þór/KA og við þurfum bara að vera tilbúnar.” Audrey Rose Baldwin stóð á milli stanganna hjá Stjörnunni í dag en hún spilaði með HK í Lengjudeildinni í sumar. Hún fékk tímabundin félagaskipti yfir til Stjörnunnar fyrr í dag. En hvernig stendur á því að hún var í markinu? „Þetta kom til vegna þess að Chanté [Sandiford] fékk höfuðhögg sem hefur spilað leikina fyrir okkur og akkúrat er staðan þannig núna hjá okkur að við erum ekki með annan markmann af ýmsum ástæðum og óskuðum eftir neyðarláni, eða ég veit ekki hvað það er kallað, og við fengum það sem betur fer.” „Ég á alveg von á því að Audrey spili á laugardaginn. Ég held að Chanté megi ekkert spila næstu dagana. Það verður að fara varlega með þessu meiðsli þannig það er mjög líklegt,” sagði Kristján að lokum aðspurður hvort Audrey muni standa á milli stanganna í lokaleiknum.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna Stjarnan Tengdar fréttir Leik lokið: Þór/KA - Stjarnan 0-4 | Garðbæingar upp í 2. sætið eftir stórsigur Einn leikur fór fram í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Stjarnan sótti Þór/KA heim á Akureyri og unnu gestirnir úr Garðabæ sannfærandi 4-0 stórsigur. Sigurinn lyftir þeim upp í 2. sæti deildarinnar. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 26. september 2022 19:20 Mest lesið Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn „Við erum helvíti seigir“ Íslenski boltinn Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Íslenski boltinn Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa Fótbolti Styrmir og félagar komnir í sumarfrí Körfubolti Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Íslenski boltinn „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Staðfestir verst geymda leyndarmál fótboltans Fótbolti Segja vinslit hjá Tiger Woods og Rory McIlroy Golf Fleiri fréttir „Við erum helvíti seigir“ Bragi Karl tryggði ÍR-ingum stig á elleftu stundu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Oliver með þrennu gegn gömlu félögunum Sextán ára stelpa skoraði í Bestu eftir stoðsendingu frá einni fimmtán ára „Hrafninn svífur yfir Vesturbænum“ Eysteinn ráðinn framkvæmdastjóri KSÍ Bláa flautan hjálpar bæði foreldrum og þjálfurum Rankaði við sér í sjúkrabíl: „Þekki hve alvarlegar afleiðingar þetta getur haft“ Uppgjör: Tindastóll - Fylkir 3-0 | Fyrsta tap nýliðanna Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-2 | Þrír norðansigrar í röð Rekin út af fyrir litla töf, Nadía reddaði Fanneyju og Blikar sjóðheitir Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir komu til baka suður með sjó „Eitthvað sem þær þurfa að svara fyrir á fundi á morgun“ Uppgjörið og viðtöl: FH - Þróttur 1-0 | Sigurmark á 96. mínútu Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 5-1| Blikar kláruðu dæmið í fyrri hálfleik „Spáin hjálpar okkur frekar en eitthvað annað“ Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Arnar í tveggja leikja bann Aðeins einn uppalinn Valsmaður í Bestu deild karla „Maður hefur verið milli tannanna á fólki síðan maður var ungur“ „Tveir Víkingar? Ég er bara hissa“ Adam hundfúll og Arnar beint í símann Vatnstjónið vísar Stólum til Akureyrar Segir að Viðar hafi ekki mætt á æfingu á leikdegi Sjáðu aukaspyrnumark Gylfa, umdeildan rangstöðudóm og rauðu spjöldin „Arnar fór langt yfir strikið“ en nafni hans oftar með dónaskap Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - Valur 2-3 | Manni færri héldu gestirnir út Lýkur Gylfi markaþurrð Vals á Kópavogsvelli? Nánast uppselt á leik kvöldsins Sjá meira
Leik lokið: Þór/KA - Stjarnan 0-4 | Garðbæingar upp í 2. sætið eftir stórsigur Einn leikur fór fram í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Stjarnan sótti Þór/KA heim á Akureyri og unnu gestirnir úr Garðabæ sannfærandi 4-0 stórsigur. Sigurinn lyftir þeim upp í 2. sæti deildarinnar. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 26. september 2022 19:20