Hvetur fleiri heilbrigðisstarfsmenn til að skrá sig í bakvarðasveitina Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 15. október 2020 12:29 Alma Möller, landlæknir, hvetur heilbrigðisstarfsmenn til að skrá sig í bakvarðasveitina. Vísir/Vilhelm
Alma Möller, landlæknir, hvatti í dag fleiri heilbrigðisstarfsmenn til að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu vegna kórónuveirufaraldursins. 307 eru nú skráðir í baksvarðasveitina en í vetur voru um þúsund manns skráðir. „Við myndum alveg vilja sjá fleiri skráningar í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu. Þar eru nú 307 og ég hvet heilbrigðisstarfsmenn til að skrá sig; þá sem eru hættir störfum og treysta sér í vinnu, þá sem starfa við annað og þá sem starfa í einkarekinni þjónustu,“ sagði Alma á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag. Hægt væri að velja um að sinna ýmsum störfum, til dæmis sjúklingum með Covid-19, símsvörun, fjarþjónustu og smitrakningu. Þá minnti hún einnig á bakvarðasveit velferðarþjónustu. Hefur trú á að það verði hægt að manna gjörgæsluna Aðspurð á fundinum hversu marga þyrfti til í bakvarðasveitina að hennar mati, til dæmis svo hægt væri að tryggja þjónustu á gjörgæsludeild Landspítalans, sagði Alma að ekki væri búið að reikna út hversu marga þyrfti til viðbótar í sveitina. „Við vorum auðvitað með um þúsund manns í vetur og það voru kannski um fimmtán prósent þeirra sem voru kallaðir til. Þannig að þetta er nú ekkert mjög stór hópur en af því að þú nefnir gjörgæslurnar þá er hægt að færa til fólk, eins og þeir sem vinna á skurðstofum, svæfinga- og gjörgæslulæknar og svæfingahjúkrunarfræðingar, þeir geta farið og unnið á gjörgæslu og svo eigum við líka marga sem eru í einkageiranum sem geta líka farið þangað. Þannig að ég hef trú á að það verði hægt að manna gjörgæslurnar,“ sagði Alma.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira