Dreymir um Meistaradeildina og ákveður eftir tímabilið hvort hún verður áfram Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. október 2020 14:25 Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristianstad, var í viðtali í Pepsi Max mörkum kvenna í gær. stöð 2 sport
Elísabet Gunnarsdóttir segir að hún ákveði eftir tímabilið hvort hún haldi áfram með sænska liðið Kristianstad sem hún hefur stýrt undanfarin tólf ár. Kristianstad vann 1-2 sigur á meisturum Rosengård í sænsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Þetta er í fyrsta sinn síðan Elísabet tók við Kristianstad sem liðið nær í stig gegn Rosengård á útivelli. Kristianstad er í 3. sæti deildarinnar og ef liðið endar þar kemst það í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn í sögu félagsins. „Ég vil ekki eiga liðið. Það eru margir sem vilja meina að ég eigi liðið en ég vil það alls ekki. Ég er pottþétt búin að undirbúa það í 4-5 ár að þegar einhver tekur við af mér verður þetta vel búið lið sem góður þjálfari getur tekið við. En við erum ekki komin í Meistaradeild Evrópu, ekki búin með markmiðið þannig ég get ekki sagt að ég verði hérna áfram. Ég tek ekki ákvörðun fyrr en tímabilinu er lokið,“ sagði Elísabet í samtali við Helenu Ólafsdóttur í Pepsi Max mörkum kvenna á Stöð 2 Sport í gær. Taktíkin gekk fullkomlega upp Elísabet fór vel yfir leikinn gegn Rosengård og hvernig Kristianstad fór að því að vinna hann. „Við vorum ótrúlega staðráðnar í því að vinna þennan leik. Hann skipti sköpum fyrir okkur. Við vorum með ákveðna taktík sem mér fannst ganga nánast hundrað prósent upp,“ sagði Elísabet. „Í rauninni var taktíkin mjög einföld. Oft þegar maður fer og spilar við Rosengård á útivelli er maður með bilaðan fókus á allt sem þær geta gert og hvernig þær geta komist á bak við okkur og skapað færi. Við ákváðum að einbeita okkur að því sem þær geta ekki gert og hundrað prósent einbeitingu á því sem við getum gert. Það er ótrúlega mikill munur á þessu, að einbeita sér að styrkleikum andstæðingsins eða veikleikum hans.“ Draumabyrjun Elísabet segir að Kristianstad hafi ákveðið að setja Rosengård undir pressu í byrjun leiks. Það gaf góða raun því strax á 2. mínútu kom hin finnska Eveliina Summanen gestunum yfir. „Við vonuðust eftir marki snemma en ég viðurkenni að ég bjóst ekki alveg við marki á 2. mínútu. Það var samt ákveðin taktík að koma marki á þær mjög snemma, bakka svo með liðið því þú hápressar Rosengård ekki í Malmö á þessu grasi í heilan leik,“ sagði Elísabet. Ótrúlega erfið deild Eins og áður sagði kemst Kristianstad í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili ef liðið endar í einu af þremur efstu sætum sænsku deildarinnar. „Við ætlum okkur að spila í Meistaradeildinni á næsta ári. Það er bara þannig. Ég held að maður geri sér ekki grein fyrir því nema að spila leiki í þessari deild í hverri viku að þetta er ótrúlega erfið deild. Liðin eru svo jöfn og það er svo ótrúlega taktískt spil á bak við hvern einasta leik. Við höfum misst leikmenn út en mér finnst við hafa haldið okkur ótrúlega vel við þann fótbolta sem við ætlum okkur að spila. Það var að vera meira með boltann en við höfum nokkrum sinnum verið með og spila út úr pressu sama hvað,“ sagði Elísabet. Viðtalið við hana má sjá í heild sinni hér fyrir neðan. Klippa: Pepsi Max mörk kvenna - Viðtal við Elísabetu
Sænski boltinn Pepsi Max-mörkin Tengdar fréttir Elísabet í skýjunum eftir langþráðan sigur: „Sennilega einn af þeim bestu á ferlinum“ Í fyrsta sinn síðan Elísabet Gunnarsdóttir tók við Kristianstad náði liðið í stig gegn Rosengård á útivelli. Kristianstad gerði reyndar gott betur og vann meistarana með tveimur mörkum gegn einu. 12. október 2020 10:31 Lærimeyjar Elísabetar skelltu Rosengard á útivelli Óvænt úrslit litu dagsins ljós í sænska kvennaboltanum í dag. 11. október 2020 17:34 Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira
Elísabet í skýjunum eftir langþráðan sigur: „Sennilega einn af þeim bestu á ferlinum“ Í fyrsta sinn síðan Elísabet Gunnarsdóttir tók við Kristianstad náði liðið í stig gegn Rosengård á útivelli. Kristianstad gerði reyndar gott betur og vann meistarana með tveimur mörkum gegn einu. 12. október 2020 10:31
Lærimeyjar Elísabetar skelltu Rosengard á útivelli Óvænt úrslit litu dagsins ljós í sænska kvennaboltanum í dag. 11. október 2020 17:34