Erlent

Ráð­leggja ó­léttum að fá bólu­efni Pfizer eða Moderna

Sylvía Hall skrifar
Um það bil níutíu þúsund óléttar konur hafa verið bólusettar í Bandaríkjunum.
Um það bil níutíu þúsund óléttar konur hafa verið bólusettar í Bandaríkjunum. Getty

Breskum barnshafandi konum er ráðlagt að fá bóluefni við kórónuveirunni frá annað hvort Pfizer eða Moderna þar sem fleiri rannsóknir liggi fyrir sem benda til þess að þau séu örugg. Þetta kemur fram í tilmælum ráðgjafanefndar um bólusetningar þar í landi.

Um það bil níutíu þúsund óléttar konur hafa verið bólusettar í Bandaríkjunum samkvæmt frétt Reuters um málið. Flestar hafa verið bólusettar með bóluefnum Pfizer eða Moderna án þess að alvarlegar aukaverkanir hafi komið fram.

Nefndin ítrekar þó að ekkert bendi til þess að önnur bóluefni séu hættuleg fyrir óléttar konur, einungis að fyrirliggjandi gögn sýni að þessi tvö séu tiltölulega örugg. Frekari rannsókna sé þörf á öðrum bóluefnum hvað varðar bólusetningu á meðgöngu.

Áður hafði óléttum konum verið ráðlagt að þiggja ekki bólusetningu vegna þess að ekki var ljóst hvaða áhrif það kynni að hafa en rannsóknir hafa nú bent til þess að það sé bæði öruggt og áhrifaríkt.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×