James Webb kominn á áfangastað Árni Sæberg skrifar 24. janúar 2022 21:47 James Webb geimsjónaukinn er nú kominn á leiðarenda í um 1,5 milljónar kílómetra fjarlægð. NASA James Webb geimsjónaukinn er nú kominn á lokaáfangastað sinn, svokallaðan Lagrange-punkt 2. „Velkominn heim, Webb“ sagði yfirmaður bandarísku geimferðarstofnunarinnar, NASA, við tilefnið.
James Webb geimsjónaukinn er sá allra stærsti og fullkomnasti sem smíðaður hefur verið. Frá Lagrange-punkti 2 mun hann veita vísindamönnum tækifæri til að rýna í uppruna alheimsins. Sjónaukinn mun koma til með að geta numið innrauða geislun frá fjarlægustu stjörnuþokum alheimsins og mögulega sjá hvernig fyrstu stjörnurnar og stjörnuþokurnar mynduðust í kjölfar Miklahvells. Lagrange-punktar eru sérstakir kyrrstöðupunktar sem verða til út frá þyngdakrafti tveggja fyrirbæra sem hafa sömu þyngdarmiðjuna, eins og það er orðað á Vísindavefnum. Í þessu tilfelli eru fyrirbærin sólin og jörðin. L2 er staður þar sem miðflóttaafl JWST er til jafns við þá þyngdarkrafta sem sjónaukinn verður fyrir frá jörðinni og sólinni. Þannig situr hann fastur á sínum stað og snýr alltaf frá sólinni. Áhugasamir geta kynnt sér Lagrange-punktana frekar og á myndrænan hátt hér á vef NASA. Getur ekki beðið eftir sumrinu „Velkominn heim, Webb. Ég óska öllu teyminu til hamingju með að hafa tryggt örugga komu Webbs til L2 í dag. Við erum einu skrefi nær því að afhjúpa leyndardóma alheimsins. Og ég get ekki beðið eftir að sjá fyrstu myndir Webbs af alheiminum í sumar,“ segir Bill Nelson yfirmaður NASA um áfangann. Næst á dagskrá er að stilla búnað sjónaukans, en búist er við því að það taki þrjá mánuði.
James Webb-geimsjónaukinn Geimurinn Tækni Tengdar fréttir Vísindamenn anda léttar Vísindamönnum og verkfræðingum Geimvísindastofnanna Bandaríkjanna, Evrópu og Kanada tókst um helgina að opna gullhúðaðan spegil James Webb-geimsjónaukans. Það markaði lokaáfanga opnunar sjónaukans, sem er sá stærsti og besti sem hefur verið framleiddur. 11. janúar 2022 21:46 Það helsta í geimnum 2022: Aldrei meira um að vera í geimnum og leitin að lífi heldur áfram Vendingar í geimferðum og geimvísindum hafa verið miklar og hraðar á undanförnum árum og jafnvel sérstaklega í fyrra. Þessi þróun virðist ætla að halda áfram árið 2022 þar sem sífellt fleiri ríki og fyrirtæki koma sér fyrir á þessu sviði. 4. janúar 2022 08:01 James Webb tekur á sig mynd en ekkert má bregða útaf Byrjað er að opna geimsjónaukann James Webb sem skotið var út í geim á jóladag. Sjónaukinn er svo stór að brjóta þurfti hann saman til að koma honum af yfirborði jarðar og má ekkert fara úrskeiðis á meðan verið er að opna hann. 29. desember 2021 17:00 Sá stærsti og besti lagður af stað James Webb geimsjónaukanum var skotið af stað í langt ferðalag í vel heppnuðu geimskoti frá frá evrópsku geimmiðstöðinni í Kourou í Frönsku Gvæjana í gær. Sjónaukinn, sem er sá stærsti og besti sem hefur verið framleiddur er nú á leið í langt ferðalag þar sem honum verður komið fyrir á sporbraut um sólina í um einni og hálfri milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu. 26. desember 2021 10:34 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Frestun verkfalla kemur til greina Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Sjá meira
Vísindamenn anda léttar Vísindamönnum og verkfræðingum Geimvísindastofnanna Bandaríkjanna, Evrópu og Kanada tókst um helgina að opna gullhúðaðan spegil James Webb-geimsjónaukans. Það markaði lokaáfanga opnunar sjónaukans, sem er sá stærsti og besti sem hefur verið framleiddur. 11. janúar 2022 21:46
Það helsta í geimnum 2022: Aldrei meira um að vera í geimnum og leitin að lífi heldur áfram Vendingar í geimferðum og geimvísindum hafa verið miklar og hraðar á undanförnum árum og jafnvel sérstaklega í fyrra. Þessi þróun virðist ætla að halda áfram árið 2022 þar sem sífellt fleiri ríki og fyrirtæki koma sér fyrir á þessu sviði. 4. janúar 2022 08:01
James Webb tekur á sig mynd en ekkert má bregða útaf Byrjað er að opna geimsjónaukann James Webb sem skotið var út í geim á jóladag. Sjónaukinn er svo stór að brjóta þurfti hann saman til að koma honum af yfirborði jarðar og má ekkert fara úrskeiðis á meðan verið er að opna hann. 29. desember 2021 17:00
Sá stærsti og besti lagður af stað James Webb geimsjónaukanum var skotið af stað í langt ferðalag í vel heppnuðu geimskoti frá frá evrópsku geimmiðstöðinni í Kourou í Frönsku Gvæjana í gær. Sjónaukinn, sem er sá stærsti og besti sem hefur verið framleiddur er nú á leið í langt ferðalag þar sem honum verður komið fyrir á sporbraut um sólina í um einni og hálfri milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu. 26. desember 2021 10:34