Sjáðu hetjudáðir markvarðar Forest og brjálaðan fögnuð eftir leik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. maí 2022 14:32 Brice Samba og Brennan Johnson fallast í faðma eftir sigur Nottingham Forest á Sheffield United í vítaspyrnukeppni í seinni leik liðanna í undanúrslitum umspils um sæti í ensku úrvalsdeildinni. getty/Joe Prior Nottingham Forest komst skrefi nær því að komast upp í ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn í 23 ár þegar liðið vann Sheffield United í vítaspyrnukeppni í seinni umspilsleik liðanna, 3-2.
Brice Samba, markvörður Forest, var hetja liðsins en hann varði þrjár spyrnur í vítakeppninni. Hann varði einnig nokkrum sinnum vel í leiknum sjálfum. Forest mætir Huddersfield Town í úrslitaleik umspilsins á Wembley sunnudaginn 29. maí. Forest vann fyrri leikinn gegn Sheffield United á Bramall Lane, 1-2. Hagur Forest vænkaðist enn frekar þegar Brennan Johnson kom liðinu yfir á 19. mínútu í leiknum í gær. Sander Berge jafnaði fyrir Sheffield United í upphafi seinni hálfleiks og stundarfjórðungi fyrir leikslok kom John Fleck gestunum yfir, 1-2, og jafnaði í 3-3 samanlagt. Fleiri mörk voru ekki skoruð í venjulegum leiktíma og því var framlengt. Iliman Ndiaye fékk kjörið færi til að tryggja Sheffield United sigur á 115. mínútu en Samba kom Forest til bjargar með frábærri markvörslu. Hann hélt uppteknum hætti í vítakeppninni og varði tvær fyrstu spyrnur Sheffield United, frá Oliver Norwood og Conor Hourihane. Forest skoraði úr fyrstu þremur spyrnum sínum en Joe Lolley skaut yfir úr fjórðu spyrnu liðsins. Morgan Gibbs-White fékk því tækifæri til að jafna fyrir Sheffield United en Samba varði spyrnu hans og tryggði Forest sigurinn og sæti í leiknum verðmæta á Wembley í lok mánaðarins. Klippa: Vítakeppni Nottingham Forest og Sheffield United Eftir leikinn þustu áhorfendur á City Ground inn á völlinn og fögnuðu gríðarlega. Það setti hins vegar svartan blett á fagnaðarlætin að einn stuðningsmaður Forest skallaði Billy Sharp, fyrirliða Sheffield United. Hann hefur verið handtekinn. Forest byrjaði tímabilið skelfilega og fékk aðeins eitt stig í fyrstu sjö leikjum sínum í ensku B-deildinni. En eftir að Steve Cooper var ráðinn knattspyrnustjóri liðsins hefur allt breyst og Forest er nú aðeins einum sigri frá því að leika í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Forest lék síðast í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 1998-99. Liðið endaði þá í tuttugasta og neðsta sæti og féll. Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá vítaspyrnukeppnina í leik Nottingham Forest og Sheffield United og fagnaðarlætin eftir leik.
Enski boltinn Tengdar fréttir Fylgdi í fótspor föður síns og varð annar til að skora í báðum leggjum umspilsins Brennan Johnson skoraði eina mark Nottingham Forest í venjulegum leiktíma er liðið tryggði sér sæti í úrslitum umspilsins um sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. 17. maí 2022 22:30 Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Fótbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Sjá meira
Fylgdi í fótspor föður síns og varð annar til að skora í báðum leggjum umspilsins Brennan Johnson skoraði eina mark Nottingham Forest í venjulegum leiktíma er liðið tryggði sér sæti í úrslitum umspilsins um sæti í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. 17. maí 2022 22:30