Pitt rúllað út í hjólastól

Brad Pitt.
Brad Pitt. AFP

Stórleikarinn Brad Pitt sást yfirgefa læknamiðstöð í Beverly Hills í Los Angeles í hjólastól á miðvikudaginn. Ekkert alvarlegt er þó talið hafa komið fyrir Pitt og hjólastóllinn frekar hluti af hefðbundinni verklagsreglu. 

Pitt var hjá tannlækni að því fram kemur á vef Page Six. Slúðurmiðillinn birti myndir af hjartaknúsaranum með sólgleraugu og grímu í hjólastól. Leikarinn var klæddur í gráar buxur og var í svörtum jakka með hettu þannig að hann var nær óþekkjanlegur. 

Starfsmaður ýtti Pitt í hjólastólnum á undan sér en lífvörður sá um að vernda Pitt. Ekki er vitað hvort Pitt hafi verið í alvarlegri tannaðgerð. Líklegast þykir að Pitt hafi verið rúllað út eins og öðrum sjúklingum. Það er gert til að koma í veg fyrir að sjúklingar geti farið í mál ef eitthvað kemur fyrir á leið út. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þótt þér hafi tekist að leggja fyrir að undanförnu ættirðu ekki láta ginnast af gylliboðum um skjótfenginn gróða. Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur klárað í dag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riely og Lucinda Riley
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg