Gísli óttaðist um ferilinn en stuðningur mömmu hjálpaði Sindri Sverrisson skrifar 7. apríl 2021 10:01 Þjáningin skein úr svip Gísla Þorgeirs Kristjánssonar þegar hann gekk af velli eftir að hafa meiðst í leik með Magdeburg gegn Füchse Berlín í mars. Getty/Peter Niedung Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, óttaðist að handboltaferlinum væri lokið þegar hann fór úr axlarlið í síðasta mánuði. Áfallið var mikið en Gísli fékk uppörvandi skilaboð frá lækninum sem sér um aðgerð á öxlinni.
Gísli hefur verið óheppinn með meiðsli á sínum ferli og meiddist alvarlega á vinstri öxlinni í leik með Magdeburg gegn Füchse Berlín um miðjan mars. Samkvæmt þýska miðlinum Sky ferðaðist Gísli til Zürich núna um páskahelgina til að fara í aðgerð og þó að ljóst sé að hann verði lengi frá keppni þá mun hann geta snúið aftur á völlinn. „Mér líður betur núna. Fyrstu fimm dagarnir voru erfiðir fyrir mig,“ sagði Gísli í samtali við Sky. Móðir hans, þingmaðurinn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, flaug til móts við Gísla til að styðja við bakið á honum. „Þetta eru þriðju axlarmeiðslin og í annað sinn sem ég fer í aðgerð á öxlinni. Það voru gríðarleg vonbrigði fyrir mig að vita að tímabilið væri búið og að ég gæti ekki hjálpað liðinu mínu. Það var mjög gott að mamma mín gat fengið hentugt flug frá Íslandi sama dag. Það hjálpaði mér mikið,“ sagði Gísli. View this post on Instagram A post shared by Gi sli Þorgeir Kristja nsson (@gislithorgeir) Aðspurður hvort hefði verið verra, sársaukinn við að meiðast eða tilhugsunin um að kannski myndi hann aldrei jafna sig til fulls, svaraði Gísli: „Ég man í raun ekki eftir neinum sársauka, bara áfallinu yfir því að kannski myndi öxlin aldrei geta haldið aftur. Það var eitt erfiðasta augnablikið á mínum ferli,“ sagði Gísli sem var ánægður með svör læknisins sem sér um aðgerðina: „Það var mjög gott að heyra það þegar hann sagði að ég myndi geta spilað aftur. Hann ætlar að sjá til þess að öxlin verði stöðug og fari ekki aftur úr lið. Það voru mjög góðar fréttir,“ sagði Gísli. Uppfært kl. 12.05: Ummæli Gísla eru frá því fyrir aðgerð en hann mun samkvæmt frétt á handbolti.is fara í aðgerðina í dag.
Þýski handboltinn Handbolti Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum Körfubolti HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti Sú markahæsta með tár á hvarmi er hún tilkynnti brotthvarf sitt frá Chelsea Enski boltinn NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards Körfubolti Segir að móðurhlutverkið hafi gert sig að betri leikmanni Íslenski boltinn Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn Fleiri fréttir Öruggt hjá Teiti Erni og félögum HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Grótta upp í Olís eftir sigur með minnsta mun í oddaleik Hætti óvænt: Fannst hann skulda fjölskyldunni smá tíma „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Jóhanna Margrét frábær í góðum sigri Skara Viggó fór á kostum í góðum sigri Leipzig Reiður Einar hellti sér yfir eftirlitsdómarana Hættir eftir að hafa komið Fjölni upp „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri PSG tókst ekki að leika ótrúlega endurkomu Kiel eftir Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Sjá meira