Innlent

57 greindust innanlands

Atli Ísleifsson skrifar
7EA5A8E5C4D2981AD6275385A29BAB6EFF9A029D01C7939878DD66ED1C9DB94C_713x0
Vísir/vilhelm

57 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Rétt rúmlega helmingur, eða 29 manns, voru ekki í sóttkví við greiningu. Aldrei hafa verið tekin fleiri sýni á einum degi.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is, en alls hafa þá 263 greinst innanlands síðustu átta sólarhringa. Tveir eru á sjúkrahúsi vegna Covid-19 líkt og í gær.

Þrjú smit greindust á landamærum og þar sem niðurstöðu mótefnamælingar er beðið í tilfellum tveggja. Einn mældist með mótefni.

324 manns eru nú í einangrun, samanborið við 281 í gær. Þá fjölgar þeim sem eru í sóttkví, eru 2.410 í dag en voru 2.283 í gær.

Af þeim 57 sem greindust innanlands var um 54 einkennasýni að ræða, tvö við sóttkvíar- og handahófsskimun og eitt við skimun hjá ÍE.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur er nú 83,2 en var 68,4 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 4,4, en var 4,9 í gær.

Nú hafa 2.476 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Tíu þeirra sem hafa veikst af Covid-19 eru látnir.

Alls voru tekin 2798 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 640 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 1291 sýni tekin í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu og 436 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun. Aldrei áður hafa verið tekin fleiri sýni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×