U16 ára landslið Íslands til Búlgaríu

EM U16 2022 mun fara fram í Belgíu.
EM U16 2022 mun fara fram í Belgíu. Ljósmynd/KKÍ

Íslenska U16 ára landsliðið í körfubolta hélt afstað í morgun til Sófíu í Búlgaríu að keppa á EM U16. 

Strákarnir spila í B-deild og í B-riðli en þar keppa þeir gegn Lúxemborg, Sviss, Tékklandi og heimamönnum í Búlgaríu áður en leikið verður um sæti. Keppni hefst á fimmtudaginn í öllum riðlum.

Hópinn má sjá hér fyrir neðan og hægt verður að fylgjast með lifandi tölfræði og streymi frá leikjunum, hér.

Landslið U16 drengja

Ásmundur Múli Ármannsson · Stjarnan

Birgir Leifur Irving · Saint John, Kanada

Birgir Leó Halldórsson · Sindri

Birkir Hrafn Eyþórsson · Selfoss

Lars Erik Bragason · KR

Lúkas Aron Stefánsson · ÍR

Magnús Dagur Svansson · ÍR

Óskar Már Jóhannsson · Stjarnan

Pétur Goði Reimarsson · Stjarnan

Stefán Orri Davíðsson · ÍR

Tristan Máni Morthens · Selfoss

Viktor Jónas Lúðvíksson · Stjarnan

Þjálfari: Borche Ilievski

Aðstoðarþjálfarar: Sigurður Gunnar Friðriksson og Florijan Jovanov.

Sjúkraþjálfari: Andri Helgason

FIBA dómari Íslands á mótinu er Bjarki Þór Davíðsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert