Samningur upp á 1,7 milljarð um smíði fiskimjölsverksmiðju Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. mars 2021 15:32 Frá undirritun samningsins í gær. Talið frá vinstri: Hafþór Eiríksson rekstrarstjóri fiskimjölsverksmiðja, Jón Már Jónsson yfirmaður landvinnslu, Gunnar Pálsson verkfræðingur hjá Héðni, Gunnþór B. Ingvason framkvæmdastjóri, Ragnar Sverrisson framkvæmdastjóri Héðins og Jakob Valgarð Óðinsson tæknifræðingur hjá Héðni. Smári Geirsson Síldarvinnslan hefur samið við vélsmiðjuna Héðin um smíði á 380 tonna fiskimjölsverksmiðju sem sett verður upp í Neskaupstað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Síldarvinnslunni.
Fram hefur komi að Síldarvinnslan hygðist stækka fiskimjölsverksmiðju sína í Neskaupstað úr 1400 tonna sólarhringsafköstum í 2380 tonna afköst og jafnframt yrði komið upp lítilli verksmiðjueiningu sem gæti afkastað allt að 380 tonnum á sólarhring. Umræddur samningur fjallar einmitt um þá einingu. Samningurinn við Héðin um smíði á litlu verksmiðjueinunginni er upp á 1,7 milljarð króna og samkvæmt honum er gert ráð fyrir að verksmiðjan verði afhent í maímánuði 2022. Tilgangurinn með því að koma upp lítilli verksmiðjueiningu er sagður vera að auka hagkvæmni til dæmis með því að spara orku og gert er ráð fyrir að á síldar- og makrílvertíð verði einungis litla verksmiðjan starfrækt enda fari megnið af síldinni og makrílnum til manneldisvinnslu. „Á smærri loðnuvertíðum ætti einnig að vera nægilegt að reka einungis litlu verksmiðjueininguna. Sem dæmi má nefna að á yfirstandandi vertíð voru 9700 tonn af loðnu fryst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar en einungis 120 tonn fóru til vinnslu í fiskimjölsverksmiðjunni. Vinnsla á kolmunna mun hins vegar fara fram í stóru verksmiðjunni sem verður þá rekin með hámarksafköstum.“ Síldarvinnslan hefur um nokkurra ára skeið unnið að þróunarverkefnum með MATÍS þar sem skoðaðir eru möguleikar á að framleiða verðmætara prótein og lýsi úr því hráefni sem kemur til vinnslu í fiskimjölsverksmiðjunni. „Það er ekki síst aukinn ferskleiki hráefnisins sem gerir það kleift að auka verðmætin. Samhliða þeim framkvæmdum sem áður er lýst hefur verið unnið að uppsetningu á lítilli tilraunaverksmiðju með spreyþurrkun og ýmsum öðrum búnaði með möguleika á annars konar framleiðslu en hefð er fyrir.“
Sjávarútvegur Fjarðabyggð Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Einar hættir með Grillbúðina Viðskipti innlent Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Hætta skerðingum til stórnotenda Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Ráðin forstöðumaður hjá OK Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rekstrarafkoma Sýnar ekki ásættanleg Einar hættir með Grillbúðina Hætta skerðingum til stórnotenda Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Ráðin forstöðumaður hjá OK Snýr aftur til Snjallgagna Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Sjá meira