„Við vorum búnir að vita það lengi að það þjónaði ekki okkar hagsmunum að reka tvö flugrekstrarleyfi,“ segir Sigurður Bjarni Jónsson, stjórnarformaður Mýflugs og Ernis, í samtali við fréttastofu. Mbl.is greindi fyrst frá.
Hann segir það hafa haft áhrif að Mýflug missti samning um sjúkraflug um síðustu áramót eftir að hafa sinnt sjúkraflugi í átján ár. Eftir það hafi eigendur annars vegar staðið uppi með fjárhagslega sterkt félag sem var verkefnalítið og hins vegar flugfélag í langvarandi rekstrarerfiðleikum sem hafði verkefni. Unnið sé að því að sameina rekstur Ernis og Mýflugs í eitt félag.
„Það að Ernir sé ekki með leyfið lengur er bara liður í því. Þetta er að mestu undirbúið, svona eins og hægt er að undirbúa svona hluti,“ segir Sigurður. Eigendur hafi beðið Vegagerðina um að leysa Erni frá samningi um áætlunarflug og Mýflug tekið við áætlunarflugi til og frá Höfn í Hornafirði.
Merkilegri sögu lokið
Að sögn Sigurðar hefur þetta ferli ekki leitt til rofs á þjónustu og búið hafi verið að færa flugmenn Ernis til Mýflugs fyrir um tveimur mánuðum. Ernir muni starfa áfram sem fyrirtæki og þjónusta Mýflug en félagið er enn með hlaðmenn í vinnu. Þá sé unnið að því að færa nítján sæta vél Ernis yfir á flugreksrarleyfi Mýflugs.
„Ernir því miður var ekki fær um að halda þessu leyfi úti lengur.“
Sigurður segir það leitt að langri og merkilegri sögu Flugfélagsins Ernis í íslenskum flugrekstri endi með þessum hætti. Fréttastofan hefur fjallað um um söluna á Erni til núverandi eigenda og um stofnandann Hörð Guðmundsson.
„Það er leitt að þessari sögu þurfi að ljúka og ljúki kannski ekki alveg á þeim forsendum sem allir eru sáttir við, það er bara mjög leiðinlegt.“
Fréttin hefur verið uppfærð.