Íslenski boltinn

HK með fullt hús stiga | Augna­blik og Haukar með sigra

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Isabellu Evu Aradóttur tryggði HK sigur á Króknum.
Isabellu Evu Aradóttur tryggði HK sigur á Króknum. HK.is

Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í kvöld. Augnablik, Haukar og HK unnu öll sína leiki. HK er með fullt hús stiga á meðan Augnablik og Haukar voru að vinna sinn fyrsta sigur í sumar.

Augnablik vann 2-1 útisigur á Fjölni í Grafarvogi. Sara Montoro kom heimaliðinu yfir en Júlía Katrín Baldvinsdóttir og Díana Ásta Guðmundsdóttir skoruðu tvívegis fyrir gestina með mínútu millibili í síðari hálfleik.

Á Sauðárkróki vann HK 1-0 útisigur á Tindastóli þökk sé marki Isabellu Evu Aradóttur á 34. mínútu.

Á Ásvöllum var Fylkir í heimsókn. Fór það svo að Haukar unnu 3-1 sigur þrátt fyrir að Vienne Behnke hafi komið Fylki yfir. Keri Michelle Birkenhead svaraði með þremur mörkum fyrir Hauka, tveimur í fyrri hálfleik og einu í síðari hálfleik.

Stöðuna í deildinni  má finna á vef Knattspyrnusambands Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×