Byrja með „umfangsminni hugmyndir“ um hálendisþjóðgarð Samúel Karl Ólason skrifar 28. nóvember 2021 14:37 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm „Ef maður er hættur að komast áfram, getur verið ágætt að stíga aðeins aftur á bak.“ Þetta sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, um mögulegan hálendisþjóðgarð í ljósi þess að Sjálfstæðisflokkurinn væri að taka yfir umhverfisráðuneytið. Guðlaugur Þór Þórðarson fer úr utanríkisráðuneytinu og verður ráðherra umhverfis- og loftslagsmála. Í stjórnarsáttmálanum sem kynntur var í dag segir að stofnaður verði þjóðgarður á þegar friðlýstum svæðum og jöklum í þjóðlendum á hálendinu með breytingum á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð. Sérstök áhersla verði lögð á samtal og samvinnu við heimamenn og svæðisráðum. Sjá einnig: Þetta ætlar ríkisstjórnin að gera á kjörtímabilinu Í fyrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna náðist ekki samkomulag um hálendisþjóðgarð. Aðspurður um það hvort minnka eigi mögulegan hálendisþjóðgarð í ljósi þess að stækka eigi Vatnajökulsþjóðgarð sagði Bjarni: „Við tökum tvö skref aftur á bak og byrjum með aðeins, hvað eigum við að segja, umfangsminni hugmyndir um að grípa til friðana og stofnunar þjóðgarðs á hálendinu. Engu að síður er verið að vinna áfram í þá átt.“ Bjarni sagði einnig að verið væri að reyna að læra af því ferli sem hefði átt sér stað. Það hefðu ekki bara verið stjórnarflokkarnir sem hefðu verið ósammála. „Við erum í samtali við samfélagið og það voru margar athugasemdir sem við erum að horfa til og hlusta eftir.“ Hrein orka verðmætari Bjarni sagði að honum þætti sjálfsagt að virkjanakostir sem þegar væru komnir í nýtingarflokk kæmi til greina að nýta og virkja. Ísland væri í miðjum orkuskiptum. „Við horfum til þess að græn orka á Íslandi geti verið grundvöllur til þess að viðhalda sterkri ímynd Íslands á alþjóðavísu en líka að hjálpa til við orkuskiptin innanlands og gera okkur að grænna og vænna samfélagi um leið og við aukum verðmætasköpun.“ Hann sagði gríðarleg tækifæri í orkunni og að hrein orka væri að verða verðmætari. Þá sagði Bjarni að ekkert hefði gengið í að samþykkja nýja rammaáætlun frá 2013 og það mætti ekki vera þannig áfram. Viðtalið við Bjarna má sjá hér að neðan. > Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri hreyfingarinnar grænt framboð, sagði sú breyting sem talað sé um í stjórnarsáttmálanum sé mikil, þó hún sé ekki jafn stór og boðuð hafi verið á sínum tíma. „Við horfum á þetta sem langtímaverkefni og sem, held ég, felur í sér mikil sóknarfæri fyrir okkur öll,“ sagði Katrín. Hún sagði mikilvægt að friðun væri gerð í eins góðu samræmi við heimamenn og hægt sé og það hafi reynst erfitt á síðasta kjörtímabili. Viðtalið við Katrínu má sjá hér að neðan. >
Guðlaugur Þór Þórðarson fer úr utanríkisráðuneytinu og verður ráðherra umhverfis- og loftslagsmála. Í stjórnarsáttmálanum sem kynntur var í dag segir að stofnaður verði þjóðgarður á þegar friðlýstum svæðum og jöklum í þjóðlendum á hálendinu með breytingum á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð. Sérstök áhersla verði lögð á samtal og samvinnu við heimamenn og svæðisráðum. Sjá einnig: Þetta ætlar ríkisstjórnin að gera á kjörtímabilinu Í fyrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna náðist ekki samkomulag um hálendisþjóðgarð. Aðspurður um það hvort minnka eigi mögulegan hálendisþjóðgarð í ljósi þess að stækka eigi Vatnajökulsþjóðgarð sagði Bjarni: „Við tökum tvö skref aftur á bak og byrjum með aðeins, hvað eigum við að segja, umfangsminni hugmyndir um að grípa til friðana og stofnunar þjóðgarðs á hálendinu. Engu að síður er verið að vinna áfram í þá átt.“ Bjarni sagði einnig að verið væri að reyna að læra af því ferli sem hefði átt sér stað. Það hefðu ekki bara verið stjórnarflokkarnir sem hefðu verið ósammála. „Við erum í samtali við samfélagið og það voru margar athugasemdir sem við erum að horfa til og hlusta eftir.“ Hrein orka verðmætari Bjarni sagði að honum þætti sjálfsagt að virkjanakostir sem þegar væru komnir í nýtingarflokk kæmi til greina að nýta og virkja. Ísland væri í miðjum orkuskiptum. „Við horfum til þess að græn orka á Íslandi geti verið grundvöllur til þess að viðhalda sterkri ímynd Íslands á alþjóðavísu en líka að hjálpa til við orkuskiptin innanlands og gera okkur að grænna og vænna samfélagi um leið og við aukum verðmætasköpun.“ Hann sagði gríðarleg tækifæri í orkunni og að hrein orka væri að verða verðmætari. Þá sagði Bjarni að ekkert hefði gengið í að samþykkja nýja rammaáætlun frá 2013 og það mætti ekki vera þannig áfram. Viðtalið við Bjarna má sjá hér að neðan. > Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri hreyfingarinnar grænt framboð, sagði sú breyting sem talað sé um í stjórnarsáttmálanum sé mikil, þó hún sé ekki jafn stór og boðuð hafi verið á sínum tíma. „Við horfum á þetta sem langtímaverkefni og sem, held ég, felur í sér mikil sóknarfæri fyrir okkur öll,“ sagði Katrín. Hún sagði mikilvægt að friðun væri gerð í eins góðu samræmi við heimamenn og hægt sé og það hafi reynst erfitt á síðasta kjörtímabili. Viðtalið við Katrínu má sjá hér að neðan. >
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Vinstri græn Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Umhverfismál Orkumál Vatnajökulsþjóðgarður Hálendisþjóðgarður Framsóknarflokkurinn Alþingiskosningar 2021 Þjóðgarðar Skaftárhreppur Mýrdalshreppur Hornafjörður Múlaþing Þingeyjarsveit Skútustaðahreppur Tengdar fréttir Katrín segist hafa talað mest fyrir því að hreyfa ráðuneytin Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segist hafa talað manna mest fyrir því að breytingar yrðu gerðar á ráðherraskipan flokkanna sem munu mynda annað ráðuneyti hennar. 28. nóvember 2021 14:23 Þetta ætlar ríkisstjórnin að gera á kjörtímabilinu Loftslagsmál, heilbrigðismál og tæknibreytingar eru einna fyrirferðamestu málaflokkarnir í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar sem kynntur var í dag. Miklum úrbótum er lofað í heilbrigðismálum þar sem skipa faglega stjórn yfir Landspítalann að norrænni fyrirmynd. 28. nóvember 2021 14:07 Stjórnarandstaðan heldur formennsku stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar en ekki öðrum Ný ríkisstjórn Íslands ætlar að taka aftur formennsku allra nefnda, að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd undanskilinni. Þar mun stjórnarandstaðan fara áfram með formennsku. 28. nóvember 2021 13:51 Tilnefna Birgi Ármanns sem forseta Alþingis Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, verður tilnefndur í embætti forseta Alþingis. Þetta sagði Bjarni Benediktsson, formaður flokksins í viðtali við Heimi Má Pétursson eftir kynningu stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar í dag. 28. nóvember 2021 13:31 Bein útsending: Ný ríkisstjórn kynnt til leiks Ný ríkisstjórn verður skipuð í dag og verður Vísir í beinni útsendingu frá kynningu nýs stjórnarsáttmála á Kjarvalsstöðum. Þá munu tvö ríkisráð funda á Bessastöðum. 28. nóvember 2021 12:03 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Fleiri fréttir Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Sjá meira
Katrín segist hafa talað mest fyrir því að hreyfa ráðuneytin Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segist hafa talað manna mest fyrir því að breytingar yrðu gerðar á ráðherraskipan flokkanna sem munu mynda annað ráðuneyti hennar. 28. nóvember 2021 14:23
Þetta ætlar ríkisstjórnin að gera á kjörtímabilinu Loftslagsmál, heilbrigðismál og tæknibreytingar eru einna fyrirferðamestu málaflokkarnir í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar sem kynntur var í dag. Miklum úrbótum er lofað í heilbrigðismálum þar sem skipa faglega stjórn yfir Landspítalann að norrænni fyrirmynd. 28. nóvember 2021 14:07
Stjórnarandstaðan heldur formennsku stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar en ekki öðrum Ný ríkisstjórn Íslands ætlar að taka aftur formennsku allra nefnda, að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd undanskilinni. Þar mun stjórnarandstaðan fara áfram með formennsku. 28. nóvember 2021 13:51
Tilnefna Birgi Ármanns sem forseta Alþingis Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, verður tilnefndur í embætti forseta Alþingis. Þetta sagði Bjarni Benediktsson, formaður flokksins í viðtali við Heimi Má Pétursson eftir kynningu stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar í dag. 28. nóvember 2021 13:31
Bein útsending: Ný ríkisstjórn kynnt til leiks Ný ríkisstjórn verður skipuð í dag og verður Vísir í beinni útsendingu frá kynningu nýs stjórnarsáttmála á Kjarvalsstöðum. Þá munu tvö ríkisráð funda á Bessastöðum. 28. nóvember 2021 12:03