Skýrsla Henrys: Leikur hinna glötuðu tækifæra Henry Birgir Gunnarsson skrifar 24. janúar 2022 17:40 Hundsvekktir. Strákarnir okkar ætluðu sér tvö stig í MVM Dome í dag en það gekk því miður ekki eftir. vísir/epa Svo svekkjandi. Svo hrikalega svekkjandi. Samt svo mikið stolt yfir því hvað þessir drengir eru að afreka við hrikalega erfiðar aðstæður í Búdapest.
Stemningin fyrir leik var mjög sérstök. Fáir áhorfendur um miðjan dag á mánudegi. Þetta var eins og að vera á leik í Olís-deildinni í allt of stóru húsi. Stemningin var svolítið þannig. Alls voru níu leikmenn gengnir úr skaftinu fyrir leikinn. Ansi mikið og þungt högg en á móti þá var Björgvin Páll mættur aftur eftir að hafa verið fljótur að hrista af sér veiruna. Fyrri hálfleikur var heilt yfir ljómandi vel spilaður gegn frekar áhugalausu króatísku liði. Viktor Gísli varði eins og berserkur og vörnin var í banastuði fyrir framan hann. Strákarnir voru með Króatana upp við kaðlana en náðu ekki rothögginu. Mest fimm marka munur en þá fóru menn illa að ráði sínu og munurinn aðeins tvö mörk í hálfleik. Þarna hefði liðið átt að leiða með fimm mörkum plús. Tækifærin voru til staðar og liðið fékk aðeins á sig sex mörk úr opnum leik. Fyrri hluti síðari hálfleiks var vondur. Það gekk hvorki né rak í neinu og á vellinum voru margar þungar lappir. Skiljanlega. Áræðnin var ekki sú sama og menn voru farnir að horfa of mikið á Ómar Inga í stað þess að taka af skarið eins og þeir hafa gert allt mótið til þessa. Króatarnir voru komnir með neista i augun. Neista sem strákarnir hefðu getað slökkt í fyrri hálfleik. Þegar leikurinn var alveg við það að fara í skrúfuna tók Guðmundur sitt síðasta leikhlé. Þá voru enn 17 mínútur eftir. Hann kastaði út síðasta ásnum sem var að spila 7 á 6. Smám saman kom glampinn aftur í auga strákanna okkar og á einhvern ótrúlegan hátt tókst þeim að koma sér inn í leikinn á ný og gott betur en það. Komast yfir. Til þess þurfti risahjarta og það er risahjarta í þessu liði. Þeir voru í kjörstöðu undir lokin en fóru illa með tækifærin sín. Þetta var svo sannarlega leikur hinna glötuðu tækifæra. Það er samt margt jákvætt þrátt fyrir allt svekkelsið. Vinstri vængurinn blómstraði og skilaði tíu mörkum þegar bensínið var orðið lítið hægra megin. Elvar og Orri Freyr eru að stíga sín fyrstu skrefi á stórmóti og hafa fengið í andlitið að byrja gegn Dönum, Frökkum og Króötum. Þeir hafa staðið sig afburðavel og framar vonum. Toppmenn. Viktor Gísli hélt áfram að verja vel og skilaði góðu verki. Ómar Ingi er enn töframaður þó svo hann sé á hálfum hraða. Elliði, Ýmir og vörnin átti svo enn einn stórleikinn. Þvílíkar framfarir þar og þeir félagar að ná frábærlega saman. Þrátt fyrir þetta svekkjandi tap stend ég upp og tek sixpensarann ofan fyrir þessum töffurum. Þeir eru að standa sig hrikalega vel í fáranlegum aðstæðum og fólk á vart orð yfir því hvað þetta hálfgerða varalið er að gera. Þessi orrusta tapaðist kannski en stríðinu er ekki lokið. Vonandi endurheimtum við sterka leikmenn fyrir lokaleik milliriðilsins. Nái liðið sigri þar er sæti í undanúrslitum svo sannarlega möguleiki. Áfram veginn. Þjóðin hefur enn fulla trú á strákunum okkar og ævintýrinu í Búdapest.
EM karla í handbolta 2022 Tengdar fréttir Darri: Höfum allt að vinna og engu að tapa „Þetta var virkilega svekkjandi, sérstaklega þar sem við vorum með þetta í lokin. Virkilega leiðinlegt að missa þetta svona úr höndunum á sér,“ sagði Darri Aronsson en hann kom óvænt inn í lið Íslands sem tapaði með eins marks mun gegn Króatíu á EM í handbolta. 24. janúar 2022 16:45 Elliði: Fyrst og fremst drullusvekktur út í sjálfan mig „Það er drullusvekkjandi að við höfum farið svona með þetta sjálfir. Það stingur inn að beini,“ sagði Elliði Snær Viðarsson, svekktur og sár eftir tapið nauma gegn Króatíu á EM í handbolta í dag. 24. janúar 2022 16:50 Mest lesið Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti NFL tekur ekki undir umdeild ummæli Butker Sport McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Ég táraðist smá“ Sport Fleiri fréttir Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Sjá meira
Darri: Höfum allt að vinna og engu að tapa „Þetta var virkilega svekkjandi, sérstaklega þar sem við vorum með þetta í lokin. Virkilega leiðinlegt að missa þetta svona úr höndunum á sér,“ sagði Darri Aronsson en hann kom óvænt inn í lið Íslands sem tapaði með eins marks mun gegn Króatíu á EM í handbolta. 24. janúar 2022 16:45
Elliði: Fyrst og fremst drullusvekktur út í sjálfan mig „Það er drullusvekkjandi að við höfum farið svona með þetta sjálfir. Það stingur inn að beini,“ sagði Elliði Snær Viðarsson, svekktur og sár eftir tapið nauma gegn Króatíu á EM í handbolta í dag. 24. janúar 2022 16:50