Heiða á öðrum fundi

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. mbl.is

Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, kveðst ekki hafa komist á borgarstjórnarfund í hádeginu þar sem hún sótti fund evrópsks samstarfsverkefnis fyrir hönd Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Hún var fulltrúi Íslands á fundinum.

„Ég mat það sem svo að það væri mikilvægt að ég mætti hér,“ segir Heiða í samtali við mbl.is. Ný stjórn var kosin á fundinum og jafnréttismál einnig rædd.

Þyrfti lengri tíma

Á fundi borgarstjórnar, sem enn stendur yfir, eru hagræðingartillögur og viðbrögð við miklum hallarekstri borgarinnar til umræðu.

Spurð út í hagræðingartillögur Sjálfstæðisflokksins segir Heiða það alltaf jákvætt þegar fólk leggi fram sínar hugmyndir en að hún þyrfti að fá lengri tíma til þess að fara yfir þær betur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert