Bayern fær Cancelo frá ensku meisturunum

Joao Cancelo er kominn til Bayern frá Manchester City.
Joao Cancelo er kominn til Bayern frá Manchester City. AFP/Oli Scarff

Þýsku meistararnir Bayern München hafa fengið portúgalska bakvörðinn Joao Cancelo lánaðan frá ensku meisturunum í knattspyrnu, Manchester City.

Lánssamningurinn gildir út þetta tímabil og Bayern hefur möguleika á að kaupa hann af City í sumar en Sky Sports segir að verðið yrði þá 61,5 milljón punda.

Cancelo er 28 ára gamall og kom til City frá Juventus sumarið 2019. Hann hefur leikið 98 úrvalsdeildarleiki og samtals 154 mótsleiki fyrir City en ekki átt fast sæti í liðinu í vetur. Rico Lewis og Nathan Ake hafa verið á undan honum í röðinni í stöðu vinstri bakvarðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert