Fjármögnun Landspítala verði þjónustutengd frá áramótum Þorgils Jónsson skrifar 24. september 2021 16:42 Samkomulag LSH við Sjúkratryggingar var undirritað í gær og staðfest af Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss, og María Heimisdóttir forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, undirrituðu í gær samning um breytt skipulag á fjármögnun hluta starfsemi spítalans. Í honum flest að frá og með næstu áramótum verði klínísk starfsemi LSH fjármögnuð í samræmi við umfang veittrar þjónustu. Markmiðið með þessum samningum er að fjármögnun spítalans verði meira í samræmi við þjónustuna sem veitt er.
Í tilkynningu á vef heilbrigðisráðuneytisins segir að um sé að ræða stærsta samning um kaup á heilbrigðisþjónustu sem gerður hefur verið hér á landi. Með þessu er gert ráð fyrir að fjárveitingar taki mið af raunverulegu umfangi þjónustu LSH og raunkostnaði við hana. Þá ætti af þessu að hljótast aukið gegnsæi við úthlutun fjármagns, auðveldara verði að gera áætlanir og setja markmið um magn þjónustu í samræmi við þörf þeirra sem á henni þurfa að halda. Þá er gert ráð fyrir að nýja fyrirkomulagið stuðli að aukinni skilvirkni ásamt betra eftirliti með gæðum, umfangi og hagkvæmni þjónustunnar. Með samningnum verður fjármögnun klíníska hluta starfseminnar þjónustutengd, en verkefni sem t.d. tengjast hlutverki hans á sviði kennslu og vísinda, stofnkostnaðar og meiriháttar viðhalds verða fjármögnuð með föstum fjárveitingum eins og áður. Páll segir í pistli á heimasíðu LSH að um langþráð tímamót sé að ræða. „Árið 2016 undirrituðum við samning við þáverandi heilbrigðisráðherra um innleiðingu kerfisins en nú má segja að gengið hafi verið skrefinu lengi þar sem stór hluti klínískrar starfsemi spítalans verður nú fjármagnaður með þessum hætti. Hér er því kominn hvati til að framleiða meira og veita betri þjónustu, um leið og gæðaviðmið sem liggja að baki samningnum veita starfseminni aðhald og hvatningu.“
Heilbrigðismál Landspítalinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ísraelar gera árás á Íran Erlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Innlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Erlent Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Erlent Katrín á toppnum um allt land Innlent Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Erlent Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Erlent Fleiri fréttir Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Katrín á toppnum um allt land Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Íslenska landslagið ómetanlegt fyrir manninn með loftnet í höfuðkúpunni Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti Kíghósti hefur náð útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Myndband af þjófunum í Hamraborg í fréttum Stöðvar 2 Bein útsending: Hvernig er best að reka heilbrigðisþjónustu? Helga gert að rannsaka slysasleppingarnar Kjarnorkuknúinn kafbátur í stuttri heimsókn Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima „Sérlega sérstakur“ hellir í Mývatnssveit áfram lokaður Læknir langþreyttur á skriffinnsku: „Mér líður oft eins og Indriða í Fóstbræðrum“ Rúmlega sjö hundruð Grindvíkingar vilja selja Forsetaframbjóðendur í Pallborðinu klukkan 13 á morgun Fylgi forsetaframbjóðenda, mótmæli Grindvíkinga og einhverfa barna Liður í uppbyggingunni að fólk geti sest niður og unnið úr áfallinu Cyrus og Herkúles fá já en Bergman bannaður Dæmdur fyrir árásina í Úlfarsárdal Katrín leiðir og hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur „Ef stelpur byrja ungar á blæðingum er það fyrsta flaggið“ Tvö flutt á slysadeild eftir bílveltu Jón Jónsson kemur nýr inn í stjórn Boða til fundar til að ræða framtíð MÍR eftir dómsmál Fjölgun ofbeldisbrota gegn lögreglu og öðrum opinberum starfsmönnum Sjá meira
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Innlent