Ratcliffe telur ólíklegt að hægt verði að forða íslenska laxinum frá útrýmingu Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 21. september 2021 21:16 Jim Ratcliffe hefur undanfarin ár lagt sitt af mörkum til að styðja við íslenska atlantshafslaxinn. Vísir/sigurjón Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe óttast að íslenski laxastofninn sé að deyja út. Hann er ekki bjartsýnn á að hægt verði að snúa þeirri þróun við. Banna gæti þurft veiðar á honum í sjó í einhver ár.
Ratcliffe heldur úti Verndarsvæði laxa á Norðausturlandi, verkefni sem hófst árið 2019 og er ætlað að styðja við íslenska laxastofninn. Málþing á vegum verkefnisins fór fram í dag og var Ratcliffe að sjálfsögðu meðal gesta. Þar var farið yfir nýjustu gögn úr rannsóknum á villta laxastofninum. Vondar fréttir af stofninum En þar var lítið sem ekkert um góðar fréttir. „Þetta eru fyrst og fremst vondar fréttir, ekki góðar. Og ef við lítum á það sem hefur átt sér stað hjá Norður-Atlantshafslaxinum síðustu 50 ár þá hefur stofninn minnkað um 75 prósent,“ segir Ratcliffe í samtali við fréttastofu. „Ef maður lítur síðan á síðustu 100 eða 200 ár hefur hann sennilega minnkað um 90 til 95 prósent.“ Enginn vafi á að leiðin liggi til útrýmingar Ratcliffe segir stöðuna mjög alvarlega. Það ættu allir að sjá það. „Á því leikur enginn vafi að Norður-Atlantshafslaxinn er á leið til útrýmingar. Maður getur bara gert línuritið, það er ekki erfitt, þetta er mjög bein lína [niður á við],“ segir hann. Stjórnvöld þurfi að stíga inn í. Lögfesta verði „veiða, sleppa“ aðferðina, jafnvel að stytta veiðitíma eða banna veiðar á stofninum í sjó í einhver ár. Þá hefur hann einnig áhyggjur af vexti fiskeldis og segir alls óljóst hversu skaðleg áhrif það geti haft á stofninn. En er Ratcliffe bjartsýnn á að hægt verði að snúa þessari þróun við og bjarga laxastofninum? „Nei, ég er alls ekki viss um það. Því allar fréttir sem við sjáum núna eru slæmar fréttir.“
Fiskeldi Vopnafjörður Dýr Umhverfismál Stangveiði Jarðakaup útlendinga Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Innlent Fleiri fréttir Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Sjá meira