Sævar Atli kom inn af bekknum og skoraði í dramatísku jafntefli Lyngby Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. desember 2021 14:10 Sævar Atli kom inn af bekknum og skoraði það sem virtist ætla að verða sigurmarkið. Twitter/@LyngbyBoldklub Sævar Atli Magnússon kom inn af varamannabekknum og skoraði það sem virtist ætla að vera sigurmark Lyngby er liðið heimsótti HB Köge á útivelli í dönsku B-deildinni í dag. Allt kom þó fyrir ekki.
Leikur Köge og Lyndby var hin mesta skemmtun. Færeyingurinn Petur Knudesen kom Lyngby yfir eftir tæpan hálftíma leik. Heimamenn jöfnuðu hins vegar metin fyrir hálfleik og staðan 1-1 er flautan gall. Heimamenn fengu vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks en Frederik Ibsen varði spyrnu Pierre Larsen. Það kom þó ekki að sök þar sem Joachim Rothmann kom heimamönnum yfir mínútu síðar. Eddi Gomes, fyrrum leikmaður FH, með stoðsendinguna – hann átti svo eftir að koma meira við sögu undir lok leiks. Á 68. mínútu kom Sævar Atli inn af bekknum og tíu mínútum síðar jafnaði Kristian Dirk Riis metin fyrir Lyngby. Það var svo fjórum mínútum síðar, á 82. mínútu, sem Sævar Atli kom Lyngby í 3-2 en því miður var Gomes ekki búinn að segja sitt síðasta. Það voru komnar fimm mínútur fram yfir venjulegan leiktíma þegar heimamenn fengu hornspyrnu og viti menn. Gomes stökk manna hæst og stangaði boltann í netið, staðan orðin 3-3 og reyndust það lokatölur leiksins. Með sigri hefðu lærisveinar Freys Alexanderssonar farið upp í 2. sætið en eftir leik dagsins er liðið í 3. sæti með 36 stig, þremur minna en topplið Helsingor sem hefur einnig leikið 18 leiki. Lærisveinar Daniels Agger í Köge eru í 7. sæti með 20 stig.
Fótbolti Danski boltinn Mest lesið Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Enski boltinn Völdu Albert í lið ársins Fótbolti Hundahvíslarinn sem bræddi hjörtu Kansasbúa Sport „Spilum eins og það sé enginn morgundagur“ Körfubolti „Eins og Svali segir: Móðir allra íþrótta“ Körfubolti Tuchel daðrar við Man United og Chelsea Enski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikur á Kópavogsvelli Sport Uppgjör, viðtöl og myndir: Grindavík-Valur 93-89 | Gulir jöfnuðu metin Körfubolti Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera Enski boltinn Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Fleiri fréttir Kaupstefna Brighton ástæðan fyrir brotthvarfi De Zerbi Völdu Albert í lið ársins Tuchel daðrar við Man United og Chelsea Juventus skoraði þrjú á átta mínútum og bjargaði stigi Tel að ég geti hjálpað liðinu að ná í fleiri sigra Uppgjör og viðtöl: KA-Fylkir 4-2 | Fyrsti sigur Akureyringa í hús „Okkar langar rosalega að klífa upp töfluna“ Hlín á skotskónum og Guðrún vann toppslaginn Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Sverrir Ingi á skotskónum í ótrúlegum leik Liverpool staðfestir komu Slot Víkingarnir fyrrverandi öflugir í Noregi „Hann þekkir mig örugglega betur en ég sjálfur“ Rodri gagnrýnir hugarfar Arsenal manna: Þar liggur munurinn Jafnmörg mörk og rauð spjöld í Vestmannaeyjum Dagný framlengir samning sinn við West Ham Hildur, María og Lára urðu að sætta sig við silfur í bikarúrslitaleiknum Fékk rautt spjald fyrir brot á Sveindísi sem fór meidd af velli Draumainnkoma Sævars Atla breytti leiknum Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum Mikel Arteta missti af möguleikanum Klopp: Ulla konan mín mun segja mér hvað við erum að fara að gera 23 ára og búinn að vinna deildina oftar en Rooney, Agüero og Terry Besiktas segist vera að ræða við Mourinho „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Sjá meira