Sex af okkar stelpum spiluðu í sigrinum á Svíum fyrir sex árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2020 15:29 Sara Björk Gunnarsdóttir í leik á móti Svíum í Algarvebikarnum. Getty/Vasco Celio
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Svíum á Laugardalsvellinum í kvöld í öðrum af úrslitaleikjum liðanna um sæti á EM í Englandi. Góð úrslit í kvöld gætu breytt öllu þegar kemur að því að komast á fjórða Evrópumótið í röð. Íslensku stelpurnar hafa aðeins tvisvar sinnum unnið Svía í fimmtán A-landsleikjum og aldrei í keppnisleik. Báðir sigrarnir komu í Algarve-bikarnum. Það eru hins vegar leikmenn í íslenska liðinu sem hafa upplifað það að vinna Svía í landsleik. Sex leikmenn í hópnum í dag spiluðu í síðasta sigri á Svíum fyrir rúmum sex árum síðan. Fjórar þeirra voru líka með í hinum sigrinum þremur árum fyrir. Ísland vann 2-1 sigur á Svíþjóð í síðasta landsleik þjóðanna sem fór fram í Algarve bikarnum 12. mars 2014. Sara Björk Gunnarsdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir skoruðu mörkin í fyrri hálfleik en Svíar minnkuðu muninn í blálokin. Glódís Perla Viggósdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, Dagný Brynjarsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir og Elísa Viðarsdóttir voru allir í byrjunarliðinu í þeim leik og Rakel Hönnudóttir kom inn á sem varamaður. Sandra Sigurðardóttir og Elín Metta Jensen voru síðan báðar á bekknum í leiknum. Þær fjórar sem tóku einnig þátt í 2-1 sigri á Svíum í Algarve-bikarnum árið 2011 voru þær Sara Björk Gunnarsdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, Rakel Hönnudóttir og Dagný Brynjarsdóttir en Dagný kom þá inn á sem varamaður. Síðasti keppnisleikur þjóðanna var í átta liða úrslitum á EM í Svíþjóð árið 2013 þar sem þær sænsku unnu sannfærandi 4-0 sigur. Besti árangur íslensku stelpnanna í keppnisleik á móti Svíum var 2-2 jafnteflisleikur út í Svíþjóð árið 2005 í undankeppni HM 2007. Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði íslenska liðinu þá jafntefli með marki fimmtán mínútum fyrir leikslok en Ásthildur Helgadóttir hafði áður jafnað metin í 1-1 á 49. mínútu.
EM 2021 í Englandi Mest lesið „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti PSG mætir Lyon í undanúrslitum Fótbolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti Fleiri fréttir Arna spilar með FH næstu þrjú árin PSG mætir Lyon í undanúrslitum Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Åge Hareide: Framtíðin er björt Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti