„Myndin af Kára seldist á núll einni“ Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 23. febrúar 2021 11:55 Bakarinn og listamaðurinn Jói Fel segist finna fyrir miklum áhuga og meðbyr í myndlistinni. „Ég sagði alltaf að þegar ég væri orðinn eldri að þá myndi ég leggja listina fyrir mig, svo er það spurning hvort að þetta „eldri“ sé komið núna?“, segir bakarinn og listamaðurinn Jói Fel í samtali við Vísi. „
Þetta hefur alltaf blundað í mér og ég hef málað alla ævi. Síðan ég man eftir mér hef ég verið með blýant í hönd en ég var bara fjórtán ára þegar ég kláraði mitt fyrsta málverk.“ Myndlistardraumurinn hefur fylgt Jóa lengi og segist hann á tíma hafa verið efins um það hvora leiðina hann ætti að taka í lífinu, myndlistina eða baksturinn. Þegar ég var átján ára og var að byrja að læra bakarann þá sótti ég líka um í Mynd og handíðaskóla Íslands. Ég komst alla leið í lokaúrtakið, sem var mjög gott, en náði svo ekki alla leið inn. „Ég var samt alltaf í myndlistartengdum námskeiðum og rúmlega tvítugur fór ég í kvöldskóla í Myndlistaskóla Reykjavíkur. Það hét Frjáls málun og ég hef lært hvað mest af því. Fyrir utan þetta má segja að ég sé bara sjálflærður.“ Jói segir myndlistina alltaf fylgt sér þó svo að tíminn til að sinna henni hafi verið lítill í gegnum tíðina. Myndin af Kára dýrasta myndin Er myndlistin eitthvað sem þú hefur jafnvel áhuga á að helga þig alfarið? „Þetta hefur alltaf verið svona eitthvað sem ég hafði til hliðar, svona auka. Núna hef ég allavega tímann,“ segir Jói og hlær. „Ég er orðinn eldri og þroskaðri og bara spurning hvort að ég fari ekki að leggja þetta bara alveg fyrir mig.“ Nýlega stofnaði Jói Instagram síðuna Jói Fel art þar sem hann hefur sett inn myndir af því efni sem hann hefur verið að vinna í síðustu tvö til þrjú árin. „Ég er undir miklum áhrifum af íslensku landslagi og hef málað það alla ævi. Mér finnst íslenskt landslag stórkostlegt.“ Nýlegar portrait myndir af Kára Stefánssyni hafa vakið mikla athygli og segir Jói þá Kára vera góða kunningja. „Fyrsta myndin af Kára vakti þvílíka lukku og hún seldist á núll einni. Þetta er reyndar lang dýrasta myndin sem ég hef selt.“ View this post on Instagram A post shared by Jo i Fel Art (@joifel_art) Hvernig leist Kára sjálfum á myndina? Hann skildi reyndar ekkert í þessu og furðaði sig á því að nokkur einasti maður myndi vilja kaupa mynd af sér. Nokkur verk eftir Jóa er hægt að nálgast á sýningu sem er í myndlistargalleríinu Art-67 á Laugavegi 61. „Það eru nokkrar myndir þarna til sölu en annars er alltaf hægt að hafa samband beint við mig í gegnum Instagram ef fólk vill skoða fleiri verk." Finnur þú fyrir miklum áhuga hjá fólki? „Já, mjög miklum áhuga sem er góð tilfinning. Þar sem ég hef mikinn tíma núna og er duglegur að mála má segja að nánast önnur hver mynd seljist áður en hún er kláruð. Þetta gefur mér alveg ótrúlega mikið, að mála. Besta við þetta er sæluvíman sem ég finn fyrir þegar mynd er tilbúin og ég er sáttur,“ segir Jói að lokum.
Myndlist Mest lesið Keppendur í Ungfrú Ísland 2024 Lífið Egill mætti með barnabörnin á forsýningu Snertingar Bíó og sjónvarp Glæsihús Gerðar í Blush aftur á sölu Lífið Clooney mælti með handtöku Netanyahu Lífið Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Lífið Með átján husky hunda á heimilinu og mæla með Lífið Stjörnulífið: Löng helgi, hátíðarsýning og tónleikar Lífið Forðast drama eins og heitan eldinn Lífið Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar Lífið Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós Lífið samstarf Fleiri fréttir Er hægt að „lækna“ lélegt kynlíf? Forsetaáskorunin: Hljóp í skarðið á Stuðmannaballi en í basli með textann Prinsinn hélt blautt garðpartý Keppendur í Ungfrú Ísland 2024 Glæsihús Gerðar í Blush aftur á sölu Clooney mælti með handtöku Netanyahu Stjörnulífið: Löng helgi, hátíðarsýning og tónleikar Með átján husky hunda á heimilinu og mæla með Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Sungið og sungið á Sauðárkróki Elín Metta og Sigurður eiga von á barni Forðast drama eins og heitan eldinn Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar „Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Sjá meira