Gildi eignast rúm 5% í Icelandic Salmon

Starfsmenn í sláturhúsi Arnarlax á Bíldudal pakka laxi til útflutnings. …
Starfsmenn í sláturhúsi Arnarlax á Bíldudal pakka laxi til útflutnings. Fjármagnið sem fékkst með hlutafjárútboði félagsins á meðal annars að fjárfesta í starfseminni þar. mbl.is/Helgi Bjarnason

Gildi lífeyrissjóður eignaðist um 5,5% hlut í Icelandic Salmon AS (Arnarlax) í hlutafjárútboði félagsins. Alls keypti Gildi hluti fyrir 2,9 milljarða íslenskra króna eða um 30% hlutanna sem voru til sölu. Þá keypti sjóðstýringafyrirtæki Arion banka, Stefnir, hluti fyrir rúmlega milljarð.

Í heild seldust 5,6 milljónir hluta í Icelandic Salmon í útboðinu fyrir samtals 647 milljónir norskra króna jafnvirði 9,6 milljarða íslenskra króna, að því er fram kemur í tilkynningu Salmar, móðurfélags Icelandic Salmon, til norsku kauphallarinnar.

Gert er ráð fyrir að nýta fjármagnið til frekari uppbyggingu starfsemi Icelandic Salmon hér á landi, meðal annars með uppfærslu búnaðar í sláturhúsi félagsins á Bíldudal.

Til sölu voru 4.347.826 nýir hlutir í Icelandic Salmon auk 1.281.518 hlutir sem hluthafar lögðu í útboðið. Félag Kjartans Ólafssonar, stjórnarformanns Icelandic Salmon, Gyða ehf. seldi 281.518 hluti og á félgið nú 3,2% hlut í Icelandic Salmon. Það var síðan norska Pactum AS sem seldi milljón hluti og á það félag nú um 2,7% í félaginu.

Útboðið er hluti af áætlun um að skrá félagið á Merkur-markað kauphallarinnar í Osló.  Þá segir í tilkynningu Salmar að útboðið hafi verið vel heppnað og að gert sé ráð fyrir að viðskipti með bréf Icelandic Salmon á markaði geti hafist 27. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 5.5.24 414,92 kr/kg
Þorskur, slægður 5.5.24 532,27 kr/kg
Ýsa, óslægð 5.5.24 214,40 kr/kg
Ýsa, slægð 5.5.24 144,55 kr/kg
Ufsi, óslægður 5.5.24 156,05 kr/kg
Ufsi, slægður 5.5.24 192,03 kr/kg
Djúpkarfi 2.5.24 264,00 kr/kg
Gullkarfi 5.5.24 158,79 kr/kg
Litli karfi 2.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.5.24 Bibbi Jónsson ÍS 65 Grásleppunet
Grásleppa 2.939 kg
Samtals 2.939 kg
4.5.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 8.773 kg
Skarkoli 851 kg
Ýsa 444 kg
Þorskur 156 kg
Samtals 10.224 kg
4.5.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 2.877 kg
Samtals 2.877 kg
4.5.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.166 kg
Steinbítur 137 kg
Þorskur 77 kg
Ýsa 69 kg
Sandkoli 48 kg
Þykkvalúra 17 kg
Samtals 4.514 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 5.5.24 414,92 kr/kg
Þorskur, slægður 5.5.24 532,27 kr/kg
Ýsa, óslægð 5.5.24 214,40 kr/kg
Ýsa, slægð 5.5.24 144,55 kr/kg
Ufsi, óslægður 5.5.24 156,05 kr/kg
Ufsi, slægður 5.5.24 192,03 kr/kg
Djúpkarfi 2.5.24 264,00 kr/kg
Gullkarfi 5.5.24 158,79 kr/kg
Litli karfi 2.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

4.5.24 Bibbi Jónsson ÍS 65 Grásleppunet
Grásleppa 2.939 kg
Samtals 2.939 kg
4.5.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 8.773 kg
Skarkoli 851 kg
Ýsa 444 kg
Þorskur 156 kg
Samtals 10.224 kg
4.5.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 2.877 kg
Samtals 2.877 kg
4.5.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.166 kg
Steinbítur 137 kg
Þorskur 77 kg
Ýsa 69 kg
Sandkoli 48 kg
Þykkvalúra 17 kg
Samtals 4.514 kg

Skoða allar landanir »