Erlent

Meintur mann­réttinda­brjótur kjörinn for­seti Inter­pol

Kjartan Kjartansson skrifar
Ahmed Naser al-Raisi verður forseti Interpol næstu fjögur árin.
Ahmed Naser al-Raisi verður forseti Interpol næstu fjögur árin. AP/Francisco Seco

Undirhershöfðingi við innanríkisráðuneyti Sameinuðu arabísku furstadæmanna sem er sakaður um pyntingar og gerræðislegar handtökur í heimalandinu var kjörinn forseti alþjóðalögreglunnar Interpol. Hann hefur verið kærður í fimm löndum.

Ahmed Naser al-Raisi hefur átt sæti í framkvæmdastjórn Interpol. Tæplega 69 prósent aðildarríkja stofnunarinnar greiddu honum atkvæði eftir þrjár umferðir en tvo þriðju hluta atkvæða þurfti til að ná kjöri. Raisi gegnir embættinu næstu fjögur árin.

Kjörið er umdeilt enda hafa mannréttindasamtök sakað Raisi um aðild að pyntingum og handahófskenndum handtökum í furstadæmunum þar sem hann er innri endurskoðandi innanríkisráðuneytisins, að sögn AP-fréttastofunnar.

Raisi hefur verið kærður fyrir pyntingar í fimm löndum, þar á meðal í Frakklandi þar sem höfuðstöðvar Interpol eru og í Tyrklandi þar sem forsetakjörið fór fram á aðalfundi Interpol.

Atkvæðagreiðslan um forseta Interpol er leynileg en Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra, staðfestir við Vísi að Ísland hafi greitt Sörku Havrakovu, tékkneskum ofursta, atkvæði sitt. Fulltrúar embættisins hafi talað hana mun frambærilegri frambjóðanda.

Reyna að draga Raisi fyrir dómstóla hvar sem hann ferðast

AP segir að Raisi hafi lagt mikið upp úr kosningabaráttu sinni. Hann ferðaðist víða um heim og hitti þingmenn og ráðamenn í ýmsum löndum. Í skoðanagrein í ríkisfjölmiðli í Abú Dabí sagðist hann vilja nútímavæða Interpol og fullyrti að furstadæmin legðu áherslu á að verja mannréttindi innanlands og erlendis.

Tveir Bretar sem kærðu Raisi fordæmdu kjör hans. Matthew Hodges er breskur doktorsnemi sem sat í fangelsi í furstadæmunum sakaður um njósnir í tæpa sjö mánuði árið 2018. Ali Issa Ahmad, knattspyrnuaðdáandi, segir að hann hafi verið pyntaður af öryggissveitum furstadæmisins þegar hann var handtekinn á Asíumótinu þar árið 2019.

Lögmaður þeirra segir að þeir muni reyna að draga Raisi fyrir dómstóla í þeim löndum sem hann ferðast til sem forseti Interpol.

Misnota alþjóðlegar handtökuskipanir til að ná til andstæðinga

Forseti Interpol hefur umsjón með störfum stofnunarinnar og mótar stefnu hennar. Hann stýrir aðalfundum og fundum framkvæmdastjórnar. Aðalframkvæmdastjóri stýrir daglegum rekstri Interpol en Þjóðverjinn Jörgen Stock gegnir embættinu um þessar mundir.

Kjör forseta Interpol vakti sérstaklega mikla athygli að þessu sinni í ljósi þess að Meng Hongwei, fyrsti Kínverjinn til að gegna embættinu, hvarf skyndilega á miðju kjörtímabilinu sínu þegar hann heimsótti heimalandið árið 2018. Síðar kom í ljós að hann hefði verið handtekinn og sakaður um mútur og fleiri glæpi.

Vestræn ríki hafa gagnrýnt að einræðis- og valdboðsríki eins og Rússland og fleiri misnoti handtökuskipanir Interpol til þess að ná sér niðri á pólitískum andstæðingum og andófsfólki erlendis. Forsetakjörið í ár er sagt endurspegla spennu á milli lýðræðisríkja og harðstjórna sem eiga aðild að stofnuninni.

Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum frá ríkislögreglustjóra um hvernig Ísland greiddi atkvæði.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×