Samstarf

Bylgjulestin brunar inn í sumarið

Bylgjan

Bylgjulestin er lögð af stað og mun ferðast vítt og breytt um landið, hitta hlustendur og taka þátt í fjörinu á hverjum laugardegi í beinni í allt sumar.

Fyrsta stoppistöð Bylgjulestarinnar er Grindavík en lestarstjórarnir Svali, Vala Eiríks og Ómar Úlfur verða í beinni útsendingu frá sjómanna- og fjölskylduhátíðinni Sjóaranum síkáta í Grindavík.

Sjóarinn síkáti stendur yfir alla helgina með stórglæsilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna meðal annars froðurennibraut, markaðstorg, vöfflusala, fiskisúpa og bryggjutónleikar.

Bein útsending á laugardaginn

Bylgjulesti verður í beinni á laugardaginn frá klukkan 12-16 frá hátíðarsvæðinu við Kvikuna þar sem dagskrá verður allan daginn og langt fram á kvöld, andlitsmálun fyrir krakkana, skemmtisigling, Tívolí á hafnarsvæðinu, sjópylsa í Grindarvíkurhöfn, furðurfótbolti og götuboltamót,  svo eitthvað sé nefnt. Dagurinn endar svo á Sjómannaballi í Íþróttahúsinu.

Næstu stopp Bylgjulestarinnar

  • 10. júní - Hveragerði
  • 17. júní - Akureyri
  • 24. júní - Stykkishólmur
  • 1. júlí - Akranes
  • 8. júlí - Selfoss
  • 15. júlí - Hafnarfjörður
  • 22. júlí - Reykjavík
  • 29. júlí - Húsavík

Bylgjulestin, Björt og brosandi um land allt er í samstarfi við Nóa Kropp, Nettó, Appelsín án sykurs, Vodafone, Samgöngustofu, Heklu og Orku Náttúrunnar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×