Loðnutorfur í Faxaflóa og við Grímsey ekki tilefni til að auka loðnukvótann Kristján Már Unnarsson skrifar 23. febrúar 2021 17:23 Uppsjávarveiðiskipið Polar Amaroq. Síldarvinnslan Tilkynningar skipa um miklar loðnutorfur síðasta sólarhring, bæði í norðanverðum Faxaflóa og við Grímsey, urðu til þess að Hafrannsóknastofnun lét gera sérstaka mælingu í dag til að fá úr því skorið hvort hér væru á ferðinni nýjar loðnugöngur eða meira magn en áður var búið að mæla. Fyrstu niðurstöður gefa ekki tilefni til ráðgjafar um að auka loðnukvótann, að sögn Sigurðar Guðjónssonar, forstjóra Hafrannsóknastofnunar.
Í frétt á vef Síldarvinnslunnar í morgun er haft eftir Geir Zoëga, skipstjóra grænlenska uppsjávarskipsins Polar Amaroq, að skipverjar hafi komið í „svakalega torfu“ í Jökuldýpi sunnan Snæfellsjökuls. „Hún er tæpar fimm sjómílur á lengd og þétt. Hún er frá kili og niður undir botn. Hér er sko alvöru vertíðarganga á ferðinni. Þetta hljóta að vera nokkur hundruð þúsund tonn. Við erum nú að mæla þessa risalóðningu og síðan ætlum við að svipast frekar,“ sagði Geir skipstjóri á vef SVN en Hafrannsóknastofnun fól áhöfninni á Polar Amaroq að mæla loðnugönguna. Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson siglir frá Hafnarfirði.Egill Aðalsteinsson Rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni, sem er í árlegum vetrarleiðangri að kanna ástand sjávar, var jafnframt snúið í átt til Grímseyjar og Skjálfanda til að kanna loðnugöngur þar. Hér má sjá feril skipsins. Að sögn forstjóra Hafrannsóknastofnunar er gangan í Faxaflóa komin að hrygningu. Hún er ekki talin ný loðnuganga að vestan eða norðan heldur hluti af þeirri göngu sem búin er að fara niður með Austfjörðum og vestur með suðurströndinni og áður var búið að mæla. Sömuleiðis séu göngurnar fyrir norðan land ekki taldar vera viðbót við það magn sem áður hafði mælst, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum.
Sjávarútvegur Fjarðabyggð Vestmannaeyjar Tengdar fréttir Fyrstu loðnunni landað í Eyjum Fyrsta loðnufarmi íslensks fiskiskips í þrjú ár var landað í Vestmannaeyjum í dag. Um þrjátíu prósent loðnukvótans er gerður út í Vestmannaeyjum og var líf og fjör í Eyjum í dag. 16. febrúar 2021 23:39 Nýr loðnukvóti ávísun á yfir tíu milljarða króna gjaldeyristekjur Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnukvótinn tvöfaldist frá því sem áður var búið að gefa út, samkvæmt nýrri ráðgjöf sem birt var í kvöld. Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Brims hf., segir varlega áætlað verðmæti þess sem fellur í hlut íslenskra skipa vel yfir tíu milljarðar króna í útflutningsverðmæti. 4. febrúar 2021 22:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Viðskipti innlent Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Viðskipti innlent Landa stórum sölusamningi Viðskipti innlent Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Viðskipti innlent Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Samstarf Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Viðskipti innlent Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur Samstarf Ástin laðar að: Gott að vera kona á Íslandi, en ekki innflytjandi Atvinnulíf Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Viðskipti innlent Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Sjá meira
Fyrstu loðnunni landað í Eyjum Fyrsta loðnufarmi íslensks fiskiskips í þrjú ár var landað í Vestmannaeyjum í dag. Um þrjátíu prósent loðnukvótans er gerður út í Vestmannaeyjum og var líf og fjör í Eyjum í dag. 16. febrúar 2021 23:39
Nýr loðnukvóti ávísun á yfir tíu milljarða króna gjaldeyristekjur Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnukvótinn tvöfaldist frá því sem áður var búið að gefa út, samkvæmt nýrri ráðgjöf sem birt var í kvöld. Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Brims hf., segir varlega áætlað verðmæti þess sem fellur í hlut íslenskra skipa vel yfir tíu milljarðar króna í útflutningsverðmæti. 4. febrúar 2021 22:56