Beit lögreglumann eftir að upp úr sauð í pottapartýi Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. desember 2020 21:42 Konan var dæmd fyrir að bíta lögreglumann í höndina eftir að lögregla var kölluð til að útskriftarveislu hennar. Vísir/vilhelm Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær konu í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að bíta lögreglumann í höndina. Lögregla var kölluð til í útskriftarveislu konunnar, sem varð að „pottapartýi“ líkt og lýst er í dómi, hvar upp úr sauð með fyrrgreindum afleiðingum.
Konan var ákærð fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa bitið í hönd lögreglumannsins með þeim afleiðingum að hann hlaut yfirborðsáverka á úlnlið og hendi, þegar lögreglumenn voru við skyldustörf að handtaka hana. Atburðarás kvöldsins er rakin í dómi. Lögregla var kvödd að húsi aðfaranótt sunnudagsins 23. júní 2019. Þar var konan stödd ásamt eiginmanni sínum og systur, auk tveggja í viðbót; vinar eiginmannsins og kunningja konunnar. Fram kemur í dómi að fólkið hafi allt verið undir áhrifum áfengis og eiginmaðurinn tjáð lögreglu að konan og kunningi hennar hefðu læst að sér inni í herbergi. Þá kvað hann konuna hafa kýlt vin sinn. Því er lýst í dómi að konan hafi verið í mikilli geðshræringu, „útgrátin“ og átt erfitt með að róa sig. Hún hefði sagt að fólkið væri samankomið í hennar eigin útskriftarveislu, sem hefði verið „mikil veisla og „pottapartý“.“ Hún kvaðst hafa verið að finna sundskýlu fyrir kunningja sinn en hann óvart læst að þeim og eiginmaðurinn hefði orðið afbrýðisamur. Konan hefði tekið fram að algjör óþarfi hafi verið að kalla til lögreglu vegna málsins. Dynkir og hávaði innan úr húsinu Konan og eiginmaður hennar kváðust loks orðin róleg og lögregla fór út og ræddi við áðurnefnda kunningja hjónanna. Þá hefðu heyrst miklir dynkir og hávaði innan úr húsinu. Eiginmaðurinn hefði komið til dyra og lýst því að konan hefði barið sig, sem hún er svo sögð hafa gert fyrir framan lögreglumennina. Konunni var þá tilkynnt að hún væri handtekin en hún hefði þá hlaupið inn á bað og inn í niðurbyggðan sturtuklefa. Þegar setja átti konuna í lögreglutök hefði hún gripið í vinstri hendi annars lögreglumannsins og bitið í úlnliðinn á honum. Konan sagði við skýrslutöku daginn eftir að hún hefði verið að reyna að losa sig og verið hrædd við lögreglumanninn sem hefði legið ofan á henni. Konan var að endingu dæmd í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þá var hún dæmd til að greiða rúma hálfa milljón króna í sakarkostnað.
Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Innlent Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Erlent Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Innlent Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Innlent Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Innlent Fleiri fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira