Fótbolti

Skoruðu sjö í síðasta leiknum fyrir úr­­slita­­leikinn gegn stelpunum okkar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Þær sænsku fagna markinu sínu á Laugardalsvelli.
Þær sænsku fagna markinu sínu á Laugardalsvelli. vísir/vilhelm

Svíþjóð lenti í engum vandræðum með Letta í riðli okkar Íslendinga fyrir undankeppni EM 2021 í knattspyrnu.

Svíar unnu 7-0 sigur í leik liðanna sem fór fram í Svíþjóð í kvöld en Ísland og Svíþjóð berjast um toppsætið.

Svíþjóð er nú á toppi riðilsins með sextán stig, þremur stigum á undan íslensku stelpunum, en Ísland á einn leik til góða.

Ísland er komið til Svíþjóðar þar sem liðið býr sig undir úrslitaleikinn gegn Svíum en hann fer fram í Gautaborg næsta þriðjudag.

Lettland er á botninum án stiga með mínus 35 í markatölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×