Sannkölluð draumabyrjun

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var ekki lengi að stimpla sig inn …
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var ekki lengi að stimpla sig inn með sínu nýja félagi. Ljósmynd/FCBfrauen

Knattspyrnukonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fékk sannkallaða óskabyrjun með félagsliði sínu Bayern München á dögunum.

Hún lék sinn fyrsta leik fyrir þýska stórveldið á fimmtudaginn þegar hún kom inn á sem varamaður á 65. mínútu gegn Kazygurt í Kasakstan í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Karólína var búin að vera inni á vellinum í þrjár mínútur þegar hún skoraði fimmta mark Bæjara en leiknum lauk með 6:1-sigri Bayern München.

Hún á að baki 78 leiki í efstu deild með FH og Breiðabliki og þá á hún að baki fjóra A-landsleiki þar sem hún hefur skorað eitt mark.

Karólína var að jafna sig eftir aðgerð á hné þegar hún gekk til liðs við þýska félagið frá Breiðabliki í janúar á þessu ári en hún hefur æft af fullum krafti með liðinu undanfarnar vikur.

„Þetta gat ekki byrjað betur,“ sagði Karólína í samtali við Morgunblaðið.

„Samkeppnin um stöður í liðinu er svakaleg og maður veit í raun ekki einu sinni hvort maður sé í hópi fyrr en daginn fyrir leik.

Ég er þess vegna gríðarlega þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri með liðinu í Kasakstan og núna er bara að byggja ofan á þetta. Það er mikilvægt að halda áfram á sömu braut og reyna að fá mínútur með liðinu,“ bætti hún við.

Viðtalið má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert