Annar leikur ÍA færður í Akraneshöllina

Skagamenn fá FH í heimsókn í Akraneshöllina.
Skagamenn fá FH í heimsókn í Akraneshöllina. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

ÍA og FH eigast við í fjórðu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á sunnudaginn klukkan 14 en leikurinn hefur verið færður inn í Akraneshöllina. 

Átti hann að fara fram á Akranesvelli en hefur verið færður inn þar sem a ekki er hægt að leika úti enn. 

Er þetta annar heimaleikur Skagamanna sem fram fer í Akraneshöllinni en ÍA vann Fylki, 5:1, þar í síðustu umferð.

Verður því fyrsti grasleikur sumarsins seinna um kvöldið er KR fær Breiðablik í heimsókn á Meistaravelli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka