Markalaust í fyrsta Meistaradeildarleik Xavi

Xavi var að stýra Barcelona í fyrsta skipti í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Xavi var að stýra Barcelona í fyrsta skipti í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Pedro Salado/Quality Sport Images/Getty Images

Barcelona og Benfica gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í fyrsta Meistaradeildarleik Börsunga undir stjórn Xavi. Úrslitin þýða að bæði lið eiga enn möguleika á að fara upp úr E-riðli.

Börsungar voru meira með boltann í leiknum, en bæði lið fengu sín færi til að koma boltanum í netið.

Heimamenn frá Barcelona færðu sig svo framar á völlinn í seinni hálfleik og héldu áfram að pressa á gestina. Það voru þó gestirnir sem voru nálægt því að stela sigrinum þegar Haris Seferovic slapp einn í gegn á fjórðu mínútu uppbótartíma, en setti boltann framhjá.

Niðurstaðan varð því markalaust jafntefli og bæði lið eiga því enn möguleika á að komast upp úr riðlinum.

Börsungar eru með sjö stig fyrir lokaumferðina, tveimur stigum meira en Benfica, sem hefur þó betri innbyrgðis árangur gegn Barcelona. Xavi og lærisveinar hans þurfa því á sigri að halda gegn Bayern München í lokaumferðinni, eða að treysta á að Benfica mistakist að sigra botnlið Dynamo Kiev.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira