Settu upp beint streymi af Keili ef það skyldi gjósa Vésteinn Örn Pétursson og skrifa 1. mars 2021 18:46 Úr streymi Víkurfrétta. Víkurfréttir/Skjáskot Staðarmiðillinn Víkurfréttir í Reykjanesbæ sendir nú út beint streymi af fjallinu Keili, eftir að fregnir bárust af því að líkurnar á eldgosi á Reykjanesskaga gætu verið að aukast. Streymið er tekið upp út um glugga á skrifstofuhúsnæði á fjórðu hæð, sem ritstjórinn segir hafa vaggað nánast stanslaust síðustu daga.
Í samtali við Vísi segir Páll Hilmar Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta, að dagurinn í dag sé einfaldlega búinn að „vera bara á hreyfingu.“ Svo mikill sé óróinn og hræringarnar á svæðinu, sem magnast svo upp eftir því sem farið er upp fleiri hæðir í húsinu. Bein útsending frá Keili og vettvangi jarðskjálftaBein útsending frá Keili og vettvangi jarðskjálftaPosted by Víkurfréttir on Monday, 1 March 2021 „Við erum á fjórðu hæð í fimm hæða skrifstofuhúsi í miðjum Reykjanesbæ og dagurinn í dag er bara búinn að vera á hreyfingu. Það var það sama fyrir helgina, á miðvikudaginn. Maður var bara með netta sjóriðu eftir daginn, hafandi verið hér megnið af deginum. Þetta er hátt hús og hreyfist talsvert,“ segir Páll. Á miðvikudag hófst skjálftahrina á Reykjanesskaga og stærsti skjálftinn var 5,7 að stærð og fannst hann víða á Suðvesturhorninu. Er hann sá stærsti í hrinunni til þessa. Páll segir að húsið hreyfist í talsvert langan tíma eftir að stærri skjálftar hafi riðið yfir á svæðinu. Starfsmenn séu ekki hræddir, en mörgum þykir þó nóg komið. „Við erum ekki beint hræddir, erum allavega hér við vinnu. En maður myndi alveg vilja losna við þetta. Þetta er svolítið mikið finnst okkur, og búið að vera óvenju lengi í dag,“ segir Páll. Varðandi streymið segir Páll að þegar fréttir hafi borist af því að líkurnar á eldgosi kynnu að vera að aukast, þá hafi verið ákveðið að skella myndavélinni út í glugga og beina beint að Keili. „Við erum með útsýni ansi víða. Þetta er glerhýsi, háhýsi hérna í Reykjanesbæ. Við horfum bara á Keili alla daga,“ segir Páll, sem virðist hvergi banginn þrátt fyrir að vera orðinn eilítið þreyttur á skjálftahrinunni sem nú er á sjötta degi. Uppfært: Streyminu er nú lokið.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Reykjanesbær Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Erlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Fleiri fréttir Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Sjá meira