Fjögur lið tryggðu sér sæti í milliriðlum

Brasilía fór örugglega áfram í milliriðla með fullt hús stiga.
Brasilía fór örugglega áfram í milliriðla með fullt hús stiga. Ljósmynd/IHF

Argentína, Brasilía, Tékkland og Kongó eru öll komin áfram í milliriðla á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik sem fram fer á Spáni.

Argentína vann 36:24-sigur gegn Kína í H-riðli og þá tryggði Brasilía sér efsta sæti G-riðils með 33:19-sigri gegn Paragvæ.

Tékkland lagði Slóvakíu 24:23 í E-riðlinum og þá er Kongó komið áfram í milliriðla eftir 33:24-sigur gegn Túnis í F-riðlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert