fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Miðaldra fjölskyldufaðir frá Vopnafirði hefur setið í gæsluvarðhaldi í hálft ár, grunaður um stórfelld kynferðisbrot gegn börnum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 12. maí 2022 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maðurinn sem fjölmiðlar greindu frá í gær að væri ákærður fyrir stórfelld kynferðisbrot gegn börnum heitir Brynjar Joensen Creed. Hann er fæddur árið 1970 og er fjölskyldufaðir frá Vopnafirði. Þar á Brynjar lögheimili en hann hefur búið á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár.

Samkvæmt ákæru er Brynjar sakaður um mjög alvarleg brot gegn fimm ólögráða stúlkum. Brotin eru framin á tímabilinu 2018 til 2021 en meirihluti brotanna var framinn á síðasta ári. Þau fela í sér klámfengin samskipti í gegnum samskiptaforritið Snapchat, nauðgun í bíl og á gistihúsi, börnin véluð til að nota kynlífshjálpartæki, taka upp á myndskeið og senda Brynjari, sem og dreifingu á kynferðislegu efni með þolendunum til annarra.

Sjá einnig: Meintur íslenskur barnaníðingur ákærður fyrir 17 brot

Samkvæmt heimildum DV er Brynjar grunaður um að hafa áreitt margfalt fleiri börn en hann er ákærður fyrir brot gegn. Hann hefur undanfarið hálft ár setið í gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði. Hafa meint brot hans vakið mikinn óhug meðal íbúa á Vopnafirði sem þekkja til mannsins.

Aðalmeðferð í málinu var fyrir Héraðsdómi Reykjaness þann 28. apríl síðastliðinn. Gerðar eru einkaréttarkröfur á manninn fyrir hönd stúlknanna fimm þar sem krafist er skaðabóta frá 2,5 og upp í 5 milljónir fyrir hvert barn. Dómsuppkvaðning verður þann 19. maí næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum
Enn einn Snapchat-perrinn
Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum