Innlent

Sabine býður sig fram í 3.-4. sæti í flokksvali Sam­fylkingarinnar

Atli Ísleifsson skrifar
Sabine Leskopf hefur verið borgarfulltrúi frá árinu 2018.
Sabine Leskopf hefur verið borgarfulltrúi frá árinu 2018. Aðsend

Sabine Leskopf, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og varaforseti borgarstjórnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 3.-4. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Frá þessu greinir í fréttatilkynningu. Sabine hefur verið varaborgarfulltrúi frá árinu 2014 og borgarfulltrúi frá 2018. Á þessu kjörtímabili hefur hún farið með formennsku í fjölmenningarráði sem og í innkaupa- og framkvæmdaráði. Hún er varaforseti borgarstjórnar og situr líka í umhverfis- og heilbrigðisráði, íbúaráði Laugardals og stjórn Faxaflóahafna.

Haft er eftir Sabine að það hafi verið mikill heiður og hvatning að vera fyrsti sitjandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar af erlendum uppruna.

„Ég hef í hátt í tuttugu ár starfað í grasrótarhreyfingu innflytjenda á Íslandi, sem er mjög gott veganesti í stjórnmálastarfið. Það er líka kjarni jafnaðarmennskunnar og snýst um að allir fái tækifæri til að taka þátt í að skapa gott borgarsamfélag. 17% Reykvíkinga eru af erlendum uppruna og bæði eiga og geta notið sín til fulls og tekið til máls. Ég vil því leggja áherslu að vera borgarfulltrúi með fjölmenningarlegan bakgrun, sem tekur virkan þátt í umræðunni um loftlagsbreytingar og borgarskipulag, jafnrétti í víðari skilningi og samfélag án ofbeldis, hverfismál, menntun og velferð,“ er haft eftir Sabine.

Sabine er fædd og uppalin í Þýskalandi og er gift Gauta Kristmannssyni, prófessor við HÍ, saman eiga þau þrjú börn.

„Sabine er með viðtæka háskólamenntun í tungumálum og kennslu og hefur lengst af starfað sem þýðandi og túlkur. Áhugamálin hennar eru lífræn garðyrkja og að gera upp gömul húsgögn. Hún er einnig mikill dýravinur og hefur m.a. leitt mikla endurskoðun á þjónustu borgarinnar við gæludýraeigendur,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Dagur áfram í pólitíkinni

Dagur B. Eggertsson hyggst halda áfram í pólitík og gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Hann greindi frá þessu í samtali við Morgunútvarp Rásar 2 rétt í þessu.

Skúli vill þriðja sætið

Skúli Þór Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að sækjast eftir þriðja sætinu á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Skúli skipaði þriðja sætið á lista flokksins fyrir fjórum árum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×