Leggja til að fallið verði frá tillögu sem heimilar háhýsin á Oddeyrinni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. nóvember 2021 10:40 Húsfyllir var á fundi á Akureyri árið 2019 þar sem íbúar fengu kynningu á hugmyndunum að uppbyggingu á reitnum. Vísir/Tryggvi Páll Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að fallið verði frá auglýstri tillögu að breytingu á aðalskipulagi Oddeyrar, sem verið hefur í brennidepli undanfarin ár vegna hugmynda um byggingu háhýsa á Gránufélagsreitnum svokallaða. Þá mælir skipulagsráðið einnig með því að að málefni uppbyggingar á Oddeyrinni verði tekin til umræðu að nýju að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor. Þetta er meðal þess sem fram kemur í bókun sem ráðið samþykkti á fundi sínum í gær. Hitamál í bænum Töluvert hefur verið fjallað um fyrirhugaða uppbyggingu á Oddeyrinni eftir að byggingarverktakinn SS Byggir kynnti árið 2019 hugmyndir um nokkur háhýsi á reit á Oddeyrinni, svokölluð Gránufélagsreit. Mikil umræða skapaðist um hugmyndirnar og sitt sýndist hverjum. Fór það svo að ákveðið var að efna til íbúakosningu um skipulag á svæðinu á þessu ári. Reiturinn sem um ræðir er afmarkaður með rauðu.Mynd/Akureyrarbær Fór það svo að 67 prósent þátttakenda greiddu atkvæði með gildandi skipulagi, þar sem gert er ráð fyrir þriggja til fjögurra hæða húsum á svonefndum Gránufélagsreit. Í öðru sæti kom auglýst breytingatillaga þar sem hús geta verið sex til átta hæðir með átján prósent atkvæða og því næst málamiðlunartillaga með fimm til sex hæða húsum að hámarki með fjórtán prósent atkvæða. Eitt prósent þátttakenda tóku ekki afstöðu. Aftur á byrjunarreit Eftir að úrslitin lágu fyrir sagði fulltrúi SS Byggis í viðtali við Vísi að fyrirtækið myndi ekki koma að uppbyggingu á Oddeyri á Akureyri eftir að tillögum um breytingar á aðalskipulagi var hafnað í íbúakosningu. Segja má því að málið sé að nálgast það að komast aftur á byrjunarreit. Var það tekið fyrir í skipulagsráði Akureyrarbæjar í gær þar sem samþykkt var að leggja til við bæjarstjórn að fallið yrði frá auglýstri tillögu á breytingu á aðalskipulagi á Oddeyrinni. Þá mælir ráðið einnig með því að málefni uppbyggingar á Oddeyri verði tekin til umræðu að nýju að loknum kosningum og þegar bæjarstjórn metur hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið. Bókun ráðsins: Með vísun í niðurstöðu íbúakönnunar leggur skipulagsráð til við bæjarstjórn að falla frá auglýstri tillögu að breytingu á aðalskipulagi á Oddeyri. Er mælt með að málefni uppbyggingar á Oddeyri verði tekin til umræðu að nýju að loknum kosningum og þegar bæjarstjórn metur hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið, sbr. ákvæði 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulag Akureyri Tengdar fréttir Ekki gaman að horfa á iðnaðarsvæði í niðurníðslu út um gluggann Byggingaverktakinn SS Byggir hyggst ekki koma að uppbyggingu á Oddeyri á Akureyri eftir að tillögum um breytingar á aðalskipulagi var hafnað í íbúakosningu. 14. ágúst 2021 08:00 Vonast til að leysa deilur um uppbyggingu fjölbýlishúsa með íbúakosningu Íbúakosning mun fara fram í lok maí um tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir Oddeyri á Akureyri. Var þetta samþykkt á fundi bæjarstjórnar í dag. Aðalskipulag svæðisins hefur reynst umdeilt í nokkurn tíma en sumir íbúar hafa gagnrýnt hugmyndir um byggingu hárra fjölbýlishúsa innan um lágreista byggð niðri við bryggjuna á Akureyri. 17. mars 2021 00:00 Íbúar höfnuðu hugmyndum um háhýsi með afgerandi hætti 67% þátttakenda í ráðgefandi íbúðakosningu um aðalskipulag Oddeyrar á Akureyri greiddu atkvæði með gildandi skipulagi þar sem gert er ráð fyrir þriggja til fjögurra hæða húsum á svonefndum Gránufélagsreit. 1. júní 2021 10:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Innlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Fleiri fréttir Skíðin fundust óskemmd í umferðinni Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Vill meiri og betri löggæslu í Mýrdalshreppi Mikil aðsókn í neyðarskýli Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Hádegisfréttir Bylgjunnar Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Sjá meira
Þá mælir skipulagsráðið einnig með því að að málefni uppbyggingar á Oddeyrinni verði tekin til umræðu að nýju að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor. Þetta er meðal þess sem fram kemur í bókun sem ráðið samþykkti á fundi sínum í gær. Hitamál í bænum Töluvert hefur verið fjallað um fyrirhugaða uppbyggingu á Oddeyrinni eftir að byggingarverktakinn SS Byggir kynnti árið 2019 hugmyndir um nokkur háhýsi á reit á Oddeyrinni, svokölluð Gránufélagsreit. Mikil umræða skapaðist um hugmyndirnar og sitt sýndist hverjum. Fór það svo að ákveðið var að efna til íbúakosningu um skipulag á svæðinu á þessu ári. Reiturinn sem um ræðir er afmarkaður með rauðu.Mynd/Akureyrarbær Fór það svo að 67 prósent þátttakenda greiddu atkvæði með gildandi skipulagi, þar sem gert er ráð fyrir þriggja til fjögurra hæða húsum á svonefndum Gránufélagsreit. Í öðru sæti kom auglýst breytingatillaga þar sem hús geta verið sex til átta hæðir með átján prósent atkvæða og því næst málamiðlunartillaga með fimm til sex hæða húsum að hámarki með fjórtán prósent atkvæða. Eitt prósent þátttakenda tóku ekki afstöðu. Aftur á byrjunarreit Eftir að úrslitin lágu fyrir sagði fulltrúi SS Byggis í viðtali við Vísi að fyrirtækið myndi ekki koma að uppbyggingu á Oddeyri á Akureyri eftir að tillögum um breytingar á aðalskipulagi var hafnað í íbúakosningu. Segja má því að málið sé að nálgast það að komast aftur á byrjunarreit. Var það tekið fyrir í skipulagsráði Akureyrarbæjar í gær þar sem samþykkt var að leggja til við bæjarstjórn að fallið yrði frá auglýstri tillögu á breytingu á aðalskipulagi á Oddeyrinni. Þá mælir ráðið einnig með því að málefni uppbyggingar á Oddeyri verði tekin til umræðu að nýju að loknum kosningum og þegar bæjarstjórn metur hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið. Bókun ráðsins: Með vísun í niðurstöðu íbúakönnunar leggur skipulagsráð til við bæjarstjórn að falla frá auglýstri tillögu að breytingu á aðalskipulagi á Oddeyri. Er mælt með að málefni uppbyggingar á Oddeyri verði tekin til umræðu að nýju að loknum kosningum og þegar bæjarstjórn metur hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið, sbr. ákvæði 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Með vísun í niðurstöðu íbúakönnunar leggur skipulagsráð til við bæjarstjórn að falla frá auglýstri tillögu að breytingu á aðalskipulagi á Oddeyri. Er mælt með að málefni uppbyggingar á Oddeyri verði tekin til umræðu að nýju að loknum kosningum og þegar bæjarstjórn metur hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið, sbr. ákvæði 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulag Akureyri Tengdar fréttir Ekki gaman að horfa á iðnaðarsvæði í niðurníðslu út um gluggann Byggingaverktakinn SS Byggir hyggst ekki koma að uppbyggingu á Oddeyri á Akureyri eftir að tillögum um breytingar á aðalskipulagi var hafnað í íbúakosningu. 14. ágúst 2021 08:00 Vonast til að leysa deilur um uppbyggingu fjölbýlishúsa með íbúakosningu Íbúakosning mun fara fram í lok maí um tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir Oddeyri á Akureyri. Var þetta samþykkt á fundi bæjarstjórnar í dag. Aðalskipulag svæðisins hefur reynst umdeilt í nokkurn tíma en sumir íbúar hafa gagnrýnt hugmyndir um byggingu hárra fjölbýlishúsa innan um lágreista byggð niðri við bryggjuna á Akureyri. 17. mars 2021 00:00 Íbúar höfnuðu hugmyndum um háhýsi með afgerandi hætti 67% þátttakenda í ráðgefandi íbúðakosningu um aðalskipulag Oddeyrar á Akureyri greiddu atkvæði með gildandi skipulagi þar sem gert er ráð fyrir þriggja til fjögurra hæða húsum á svonefndum Gránufélagsreit. 1. júní 2021 10:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Innlent Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Innlent Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Innlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Erlent „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Innlent Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Innlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Umfangsmikið verkefni að hreinsa til eftir slysið Erlent Fleiri fréttir Skíðin fundust óskemmd í umferðinni Starfsmaður Base Parking á 170 á bíl viðskiptavinar Vill meiri og betri löggæslu í Mýrdalshreppi Mikil aðsókn í neyðarskýli Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Hádegisfréttir Bylgjunnar Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki „Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Sjá meira
Ekki gaman að horfa á iðnaðarsvæði í niðurníðslu út um gluggann Byggingaverktakinn SS Byggir hyggst ekki koma að uppbyggingu á Oddeyri á Akureyri eftir að tillögum um breytingar á aðalskipulagi var hafnað í íbúakosningu. 14. ágúst 2021 08:00
Vonast til að leysa deilur um uppbyggingu fjölbýlishúsa með íbúakosningu Íbúakosning mun fara fram í lok maí um tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir Oddeyri á Akureyri. Var þetta samþykkt á fundi bæjarstjórnar í dag. Aðalskipulag svæðisins hefur reynst umdeilt í nokkurn tíma en sumir íbúar hafa gagnrýnt hugmyndir um byggingu hárra fjölbýlishúsa innan um lágreista byggð niðri við bryggjuna á Akureyri. 17. mars 2021 00:00
Íbúar höfnuðu hugmyndum um háhýsi með afgerandi hætti 67% þátttakenda í ráðgefandi íbúðakosningu um aðalskipulag Oddeyrar á Akureyri greiddu atkvæði með gildandi skipulagi þar sem gert er ráð fyrir þriggja til fjögurra hæða húsum á svonefndum Gránufélagsreit. 1. júní 2021 10:33