Aron sagður halda kyrru fyrir í Barcelona Sindri Sverrisson skrifar 2. mars 2021 13:01 Aron Pálmarsson verður líklega áfram hjá einu albesta liði heims, Barcelona. Getty/Martin Rose Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, er sagður hafa gert samkomulag við Barcelona um að spila áfram með liðinu á næstu leiktíð.
Þetta var fullyrt í útvarpsþættinum Tot Costa í Catalunya Radio síðastliðinn föstudag. Aron mun samkvæmt spænska miðlinum þegar hafa skrifað undir samning þess efnis að vera áfram hjá Barcelona en bíða þess að nýr forseti Barcelona skrifi undir samninginn. Samkvæmt upplýsingum Vísis hefur Aron þó ekki skrifað undir neinn samning og er ekki útséð með það hvort hann verði áfram hjá Barcelona eða rói á önnur mið. NOTÍCIA. Aaron Palmarsson seguirà al Barça (via @rsalmurri) Club i jugador han acordat la renovació i Palmarsson continuarà, la temporada vinent, al BarçaL'acord, signat per l'islandès, està pendent de la firma del president entrant Més, al @totcosta a les 19h pic.twitter.com/NN6HzZ69Qc— Tot costa (@totcosta) February 26, 2021 Forsetakosningar hjá spænska stórveldinu fara fram á sunnudaginn. Miðað við fullyrðingarnar í Tot Costa gæti því málið verið formlega frágengið þegar Aron spilar með íslenska landsliðinu gegn Ísrael ytra 11. mars, í undankeppni EM. Einn sá dýrasti í sögunni þegar hann fór til Barcelona Aron gekk í raðir Barcelona í október 2017 eftir að hafa staðið í miklu stappi við þáverandi vinnuveitendur sína í ungverska félaginu Veszprém. Hann skrifaði þá undir samning við Barcelona til fjögurra ára, eða til næsta sumars, eftir að Börsungar höfðu greitt Veszprém upphæð sem talin var gera Aron að einum allra dýrasta leikmanni sögunnar. Í fjölmiðlum var kaupverðið sagt á bilinu 700.000 til ein milljón evra en Veszprém fullyrti í yfirlýsingu að það væri hærra. Aron hefur verið afar sigursæll með liði Barcelona sem hefur haft yfirburði á Spáni síðustu ár. Í fyrra varð hann til að mynda Spánarmeistari í þriðja sinn á þremur árum, og þar með landsmeistari níunda árið í röð eftir að hafa orðið ungverskur og þýskur meistari árin á undan. Aron komst á síðustu leiktíð með Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, sem fram fór um síðustu jól vegna kórónuveirufaraldursins, en varð þar að sætta sig við silfurverðlaun eftir tap gegn sínu gamla liði Kiel.
Spænski handboltinn Tengdar fréttir Sjáðu áramótabombur Arons gegn PSG Aron Pálmarsson átti stórleik þegar Barcelona tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með sigri á Paris Saint-Germain, 37-32, í Köln í gær. 29. desember 2020 14:00 Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Íslenski boltinn Enginn Viktor Gísli en Þorsteinn Leó í hópnum Sport Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Handbolti „Með því glórulausasta sem ég hef séð“ Körfubolti Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti Í beinni: Grindavík - Tindastóll | Sópur á lofti í Smáranum? Körfubolti Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Íslenski boltinn Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Fótbolti Uppgjör og viðtöl: Valur - Njarðvík 67-82 | Íslandsmeistararnir í sumarfrí Körfubolti Fleiri fréttir Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Hergeir til Hauka Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sveinn Andri samdi við Stjörnuna Ísland í erfiðum riðli á EM Jóhanna Margrét skiptir um lið innan Svíþjóðar Fimmtán dagar á milli leikja í sama einvígi í Olís deild karla Sebastian tekur við kvennaliði Víkings Tap hjá Íslendingaliðinu í fyrsta leik 8-liða úrslita Norska stórliðið örugglega í undanúrslit HSÍ keyri sig ekki aftur í þrot vegna HM Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga „Mættum klárir og ætluðum að svara fyrir laugardaginn“ Alfreð og Dagur saman í riðli á Ólympíuleikunum Spenntur fyrir að halda HM með Íslendingum HM í handbolta 2031 fer fram á Íslandi Magnaður Bjarki Már þegar Veszprém svo gott sem tryggði sér titilinn ÍBV sendi ÍR í sumarfrí Stefán Arnars: Fram er með fjóra og við einn Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Haukar 21-25 | Stjörnukonur sendar í sumarfrí Stefán Rafn leggur skóna á hilluna Uppgjörið, viðtöl og myndir: Haukar – ÍBV 31-37 | Eyjamenn sendu Hauka í sumarfrí KA komið í sumarfrí en FH heldur áfram Magdeburg bikarmeistari eftir stórsigur gegn Melsungen Flensburg hirti brons í bikarkeppni „Hef ekki trú á að FH geti unnið Val í seríu“ Elvar Örn frábær og Melsungen mætir Magdeburg í úrslitum Sjá meira
Sjáðu áramótabombur Arons gegn PSG Aron Pálmarsson átti stórleik þegar Barcelona tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með sigri á Paris Saint-Germain, 37-32, í Köln í gær. 29. desember 2020 14:00
Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga