Ósáttur Guðmundur: Hef ekkert um það að segja

Guðmundur Guðmundsson kemur skilaboðum áleiðis í kvöld.
Guðmundur Guðmundsson kemur skilaboðum áleiðis í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson var allt annað en sáttur áður en hann ræddi við Stöð 2 og Vísi eftir leik Íslands og Brasilíu á HM karla í handbolta í kvöld. 

Fyrir viðtal miðilsins við Guðmund, lét hann fréttamanninn Stefán Árna Pálsson heyra það hressilega, en Guðmundur vildi ekki tjá sig um málið þegar hann ræddi við mbl.is eftir leik. 

„Ég hef ekkert fylgst með umræðunni. Það er tiltekið mál sem ég upplifði en er ekki tilbúinn að tala um núna. Ég hef ekki lesið blöðin til að halda einbeitingu. Ég hef ekkert um það að segja núna,“ sagði Guðmundur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka