Modern Family-höfundar leiða saman þungavigtarmenn Heiðar Sumarliðason skrifar 18. nóvember 2020 14:31 Frasier Crane og Jack Donaghy leiða saman hesta sína.
Bandaríska sjónvarpsstöðin ABC hefur pantað nýja sjónvarpsþáttaröð frá Chris Lloyd, öðrum höfundi Modern Family. Þættirnir munu fara í loftið næsta haust og eru aðalstjörnurnar ekki af verri endanum, því Alec Baldwin og Kelsey Grammer hafa nú þegar stokkið um borð. Þættirnir hafa ekki enn fengið nafn, en meðhöfundur er Vali Chandrasekaran, sem skrifaði næstum helming Modern Family-þáttanna, en var þó ekki einn af upprunalegu höfundunum. Nýju þættirnir fjalla um þrjá menn sem voru sambýlingar sem ungir menn, en upp úr vináttunni slitnaði þegar til árekstrar kom þeirra á milli. Þeir hittast nú aftur mörgum áratugum síðar og flytja inn saman. Enn hefur ekki verið tilkynnt hvaða leikari mun loka þríeykinu. Þættirnir verða teknir upp í stúdíói með mörgum myndavélum í einu (svokallaður multicam-þáttur), líkt og þættir á borð við Friends, Seinfeld og auðvitað Frasier. Slíkir þættir eru æfðir eins og leikrit, svo eru senurnar teknar upp í einni bunu, oftast fyrir framan áhorfendur. Hér leiða ýmsir gamlir samstarfsmenn saman hesta sína á ný. Lloyd og Grammer hafa áður starfað saman, en sá fyrrnefndi var einn af handritshöfundum gamanþáttarins Frasier, sem Grammer lék aðalhlutverkið í. Chandrasekaran var svo hluti af höfundateymi 30 Rock, þar sem Baldwin lék Jack Donaghy eftirminnilega. Baldwin situr þó ekki auðum höndum á meðan þættirnir eru skrifaðir, en þessa dagana er hann að leika í míníseríunni Dr. Death, sem Peacock-streymisveitan er að framleiða. Síðasta strandhögg Grammers í sjónvarpsbransann var lögfræðidramað Proven Innocent, sem endaði göngu sína sl. vor eftir aðeins 13 þætti.
Hollywood Stjörnubíó Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Sonurinn skírður Lífið Gylfi og Alexandra eiga von á barni Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Bernard Hill er látinn Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Fleiri fréttir Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling Gæsahúð og allur tilfinningaskalinn á forsýningu Mari Eltihrellirinn í Baby Reindeer íhugar að leita réttar síns Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu Frumsýning á Vísi: Segja þjóðinni loksins frá harðræðinu á vistheimilunum Ljósbrot meðal opnunarmynda í Cannes Hámhorfið: Hvað eru grafískir hönnuðir að horfa á? Cox segir Phoenix ömurlegan sem Napóleon Komu saman vegna þrjátíu ára afmælis Pulp Fiction Á slóðum Arabíu Lárens með Anthony Hopkins Keanu Reeves mun leika helsta keppinaut Sonic Fyrsta plakatið og önnur kitlan úr Snertingu Hámhorfið: Hvað eru landsliðskonur í knattspyrnu að horfa á? Fylgdi Mari Jaersk á æskuslóðir: „Hann stakk hníf inn í lungun á pabba tvisvar“ Rowling enn bitur út í Harry Potter-stjörnurnar Frumsýning á Vísi: Fyrsta kitlan úr Snertingu Bridget Jones 4 kemur út á næsta ári Mun túlka Springsteen Finna enn gríðarlega sterk áhrif Eurovision-myndarinnar Verður aftur laglega ljóskan Elle Woods Svar Íslands og Sviss við Forrest Gump mætir á skjáinn Sjá meira