Lýsti í afmæli sínu hvernig afi léti sig strjúka „upp og niður“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. desember 2020 15:36 Stúlkan lýsti atvikum í Barnahúsi og taldi dómurinn framburð hennar mjög trúverðuglegan. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að brjóta gegn stúlkubarni sem leit á hann sem afa sinn. Þá var hann sömuleiðis dæmdur fyrir vörslu og áhorf á myndir sem sýndu börn á kynferðislegan hátt. Hann var dæmdur til að greiða stúlkunni 1,5 milljónir króna í miskabætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær.
Fram kemur í dómnum að stúlkan hafi greint föður sínum frá atvikum þegar hún var að halda upp á afmæli sitt í Ævintýralandinu í Kringlunni. Hún lýsti því að sambýlismaður ömmu hennar, sem hún kallaði afa, kallaði á hana þegar hann væri að skipta um föt og léti hana þá snerta á sér typpið og gera „upp og niður.“ Það hafi gerst oftar en einu sinni. Stúlkan lýsti þessu með sama hætti í skýrslutöku fyrir dómi í Barnahúsi og sagði frá rúnkhreyfingum og sýndi með höndunum. Amman mundi eftir skrýtnum atvikum Amma stúlkunnar kvaðst í fyrstu aldrei hafa orðið vör við eitthvað óeðlilegt í samskiptum sambýlismanns síns og stúlkunnar. Þegar hún hugsaði málið þegar frá leið komu atvik upp í huga ömmunnar. Nefndi hún tilvik þegar karlmaðurinn var einn með stúlkunni í nokkurn tíma og hafði skipt um buxur þegar amman kom heim. Vildi hann ekki svara því hvers vegna. Þá nefndi hún þegar karlmaðurinn kallaði á stúlkuna með grimmd í röddinni þegar amman var að fara í sturtu. Skólahjúkrunarfræðingur skýrði frá því að á fræðslufundi hefði stúlkan skýrt frá því að hún hefði lent í því að afi hennar hefði gert eitthvað óeðlilegt við sig. Útilokað að stúlkan gæti lýst án þess að hafa upplifað Afinn var handtekinn og tjáð að hann væri grunaður um kynferðisbrot. Fram kom í framburði lögreglumanns að afinn hefði velt mikið fyrir sér hvað hann ætti að hafa gert. Nefndi hann að fyrra bragði að hugsanlega hefði hann farið yfir einhver mörk gagnvart barnabörnunum án þess að gera sér grein fyrir því. Dómari horfði á framburð stúlkunnar í Barnahúsi og þótti trúverðugur. Ekkert hefði komið fram sem drægi úr þeim trúverðugleika. Telja mætti útilokað að svo ungt barn gæti lýst athöfnum nema hafa upplifað þær með einhverjum hætti. Afinn neitaði alfarið sök en miðað við allan framburð í málinu, meðal annars hans eigin um áhorf á barnaníðsefni sem fannst í tölvu hans, þótti hann ekki trúverðugur. Afinn hefði framið kynferðisbrot gagnvart barni. Valdið sálarháska Því til viðbótar fundust fimm eintök af ljósmynd í tölvum afans en myndin sýndi barn á kynferðislegan eða klámfengin hátt. Þá fannst eitt myndskeið og 2537 ljósmyndum á farsímum, turntölvu og flakkara ákærða sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfengin hátt. Afinn neitaði sök. Dómurinn benti á að honum væri ekki gefið að sök að hafa skoðað allt efnið heldur væri það til stuðnings því að hann hefði ítrekað skoðað slíkar myndir og myndskeið. Hann gat engar skýringar gefið á tilvist myndanna. Taldi dómurinn útilokað að efnið hefði komist á tölvur hans og flakkara án aðgerða af hans hálfu. Því væri framburður hans ótrúverðugur. Taldist hafið yfir skynsaman hafa að hann hefði haft ljósmyndina í fórum sínum og auk þess horft á barnaníðsefni. Var ákærði dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Horft var til þess að hann hefði ekki áður hlotið refsingu. Hann hefði brotið gegn ungu barni sem hann naut trúnaðar hjá og nýtti sér til að brjóta alvarlega gegn. Þá hefði það valdið sálarháska hjá stúlkunni. Hann ætti sér engar málsbætur.
Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Fleiri fréttir Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Sjá meira