Taldi lögreglu hafa hótað sér í skýrslutökum Ólafur Björn Sverrisson skrifar 26. mars 2023 21:28 Guðlaugur Agnar Guðmundsson. Hann fékk 10 ára fangelsisdóm í saltdreifaramálinu svokallaða. vísir/vilhelm Endurupptökudómur hefur hafnað beiðni Guðlaugs Agnars Guðmundssonar, sem dæmdur var fyrir peningaþvætti í tengslum við stórkostlegt fíkniefnasmygl, um endurupptöku á dómnum. Guðlaugur byggði meðal annars á því að við rannsókn málsins hafi lögregla beitt hann hótunum um að gera föður hans að sakborningi í málinu.
Fjallað var um mál Guðlaugs þegar hann var árið 2010 dæmdur í tveggja ára fangelsi vegna peningaþvættis. Í héraði var hann fundinn sekur um að bera höfuðábyrgð á kókaínsmyglinu og verið dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Guðlaugur neitaði sök á öllum stigum málsins. Annar sakborningur í málinu hafði borið því við í skýrslutöku hjá lögreglu að Guðlaugur hafi beðið hann um að fá mann til að flytja fíkniefnin til Íslands, sem hann hafi gert. Fyrir dómi lýsti sakborningurinn hins vegar atvikum á annan veg og bendlaði annan mann við málið. Komst Hæstiréttur því að þeirri niðurstöðu að þar sem enginn hefði fyrir borið um hlut Guðlaugs að innflutningnum fyrir dómi, væri hafið yfir skynsamlegan vafa að Guðlaugur hafi átt þátt að innflutningnum. Var hann því sýknaður af ákæru um innflutninginn sjálfan. Faðir Guðlaugs hafi átt peninginn Guðlaugur var hins vegar ákærður og sakfelldur fyrir peningaþvætti með því að hafa aflað sér ávinnings að fjárhæð samtals 6,6 milljónum króna með sölu fíkniefna. Bar guðlaugur því við að peningurinn væri tilkominn vegna slysabóta, lána til vina með háum vöxtum og pókervinningum. Í dómi Hæstaréttar var rakið að munur á ráðstöfunartekjum og skráðum tekjum Guðlaugs á árinu 2009 og 2010 hafi numið ríflega 17 milljónum króna. Vísað var til þess að hann hafi engar skýringar gefið á þeim verulega mun. Guðlaugur fór fram á að málið yrði tekið til meðferðar á ný fyrir Hæstarétti í desember á síðasta ári. Meðal röksemda Guðlaugs voru að við rannsókn málsins hafi lögregla reynt að knýja fram játningu Guðlaugs með því að hóta að gera föður hans „að sakborningi“ í málinu. Guðlaugur hafði fyrir dómi haldið því fram að faðir hans ætti peninga sem fundust í bankahólfi föðursins. Við skýrslutöku sagðist Guðlaugur hins vegar sjálfur eiga peningana og útskýrði misræmi á þessum skýringum þannig að hann hafi verið að vernda föður sinn. Guðlaugur taldi að lögregla hafi engra gagna aflað um hver hafi farið í umrætt bankahólf þar sem ávinningurinn fannst. Engin rannsókn hafi heldur farið fram á því hvort fjárhagur föður hans hafi verið þannig að hann gæti hafa átt þá peninga sem fundust í bankahólfinu. Þannig hafi dómstóll ekki getað metið á hlutlægan hátt hverjum féð í bankahólfinu tilheyrðu. „Verðum að gera pabba þinn að aðalmanni“ Loks byggði Guðlaugur á því að stjórn rannsóknar lögreglu hafi verið í höndum spilltra lögreglumanna sem hafi verið á mála hjá umsvifamiklum fíkniefnainnflytjendum. „Ef þú kannast ekki við þessa tösku verðum við að gera pabba þinn að aðalmanni í þessu máli. Það eru bara 3 sem hafa aðgang að þessari geymslu, þú, bróðir þinn og pabbi þinn,“ sagði lögreglumaður í skýrslutöku eins og rakið er í dómi Endurupptökudóms. Taldi dómurinn að þar sem skýrslutaka yfir Guðlaugi hafi farið fram, eftir að faðir hans var handtekinn, sé ekki unnt að líta svo á að lögreglumaðurinn hafi farið með ósannindi eða beitt Guðlaug ólögmætri þvingun. Einnig var litið til þess að sakfelling Hæstaréttar byggði ekki á játningu heldur heildstæðu mati á sönnunargögnum. Ekki var fallist á endurupptöku þótt greining fjármála föðurnum hafi ekki legið fyrir Hæstarétti. Þá var ekki talið að verulegir gallar hafi verið á málinu sen réttlæti endurupptöku og beiðni Guðlaugs hafnað. Dómur Endurupptökudóms.
Dómsmál Fíkniefnabrot Lögreglumál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Fleiri fréttir Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Sjá meira